Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Síða 43
45
borðarnir rauðleitu eins og áður var sagt. Þar sern engla- og dýr-
lingamyndir og þeirra einkunnir eru á útsaumnum eru þær saum-
aðar á sérstaka áfestinga úr lérefti og striga, og áfestingarnir saum-
aðir síðan ofan á. Við þetta koma myndirnar betur fram, verða
eðlilegri og myndast meiri dýpt í þær. Hver borði skiftist í 3 jafn-
stóra kafla og myndar hver þeirra sérstaka heild fyrir sig, mynd
dýrlingsins með einkennum hans. Eru 3 kvendýrlingar á hægra
barmi og 3 karldýrlingar á hinum vinstra. Grunnarnir undir mynd-
unum eða á bak við þær eru gullsaumaðir, gólf er undir fótum
þeirra saumað með silkiþræði með ýmsum lit og skiftist í margs
konar reiti og tigla. Uppi yfir hverri mynd er silkisaumuð hvelf-
ing, gul yfir efstu og neðstu mynd á hægra borða og miðmyndinni
á vinstra borða, en blá uppi yfir efstu og neðstu mynd á vinstra
borða og miðmynd á hægra borða. Hver mynd sést standandi í
eins konar súlnahliði, súlur beggja vegna við myndina og hvíla á
þeim sperruverk eða bogar; eru súlnahliðin saumuð með bláu
silki þar sem hvelfingarnar eru gular, en rauðar þar sem þær
eru bláar.
Efst af hinum heilögu konum á hægra borðanum er Anna hin
helga; hún er i grænum kyrtli og með rauða skykkju. Er hún auð-
þekt af því, að hún ber mynd Maríu meyjar, dóttur sinnar, á vinstra
handlegg, og er mynd Maríu svo sem af litlu barni í samanburði
við önnu; María hefir kórónu á höfði (drotning himnaríkis) og ber
bláa skykkju; hún heldur á Jesú syni sínum, sem ungbarni, á hægra
armi; sveinninn er nakinn. Geislakransinn um höfuð Maríu-mynd-
arinnar er blár, en um höfuð Jesú er rauður krans. Anna hefir
höfuðdúk (fald).
Anna er sýnd hér, eins og venjulegt er, sem roskin kona; oft er hún
s/nd með Maríu og Jesú eins og hór, en oft með Maríu á öðrum armi og
Jesú á hinum; stundum með Maríu eina og kennir henni að lesa eða
biðja. Anna hin helga var verndarkona Brúnsvíkur, og á hana var gott
að heita til að forðast fátœkt, finna t/nda gripi o. s. frv. Hennar dagur
er 26. júlí í rómv. kat. kirkjunni, en fleiri á hún í hinni grísk-katólsku.
Helgi hennar tókst ekki upp í Danmörku fyr en 1425, nokkru áður á
Englandi, en ekki verulega fyr en um lok fð. aldarinnar á Þyzkalandi.
Miðmyndin á hægra borðanum er einkar fögur mynd af ungri
konu, sem at' einkennunum að ráða er Barbara hin helga. Hún er
í gulum kyrtli með víðum ermum og ber græna skykkju; kórónu
hefir hún á höfði og fald undir um hár. í hægri hendi heldur hún
á kaleik og fyrir framan hana stendur fangelsisturn með 3 glugg-
um í röð yfir dyrunum.