Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Page 49
51
hann hafi horfið eins og fleira af því tagi sumarið 1551, þegar höfuðs-
mennirnir dönsku heimsóttu staðinn.
Allur saumur og verk á bakskildinum og borðunum á kápu
þessari hefir verið svo frábærlega góður, að bersýnilegt er að hún
er frá þeim tímum er þess konar listsaumur stóð á hæsta stigi,
nefnilega frá miðri 15. öld og fram á miðja 16. öld. Þessi list var
einkum á 14., 15. og 16. öld stunduð mjög í borginni Arras (og enda
fleiri borgum) í Flandern (Flæmingjalandi), og dúkar og annað með
þess konar saum var því nefnt »oeuvres (ouvraeges og orfroies)
d’ Arras« á frakknesku og skrautlegur útsaumur á messuskrúða er
enn nefdur á ítölsku »arazzo«. Slíkar kápur eins og þessi og sams
konar messuskrúða-saumur er víða til erlendis, og er álitinn vera
mestmegnis frá því um 1500. Margt af því vita menn með vissu
að er frá Arras, og ef spurt er um hvar helzt mætti ætla að hin
gamla biskupskápa hafi gerð verið, þá liggur næst að benda á þessa
borg, sem kalla má að hafi verið höfuð-aðsetursstaður þessarar listar
um þessar mundir.
4. Saga biskupskápunnar gömlu.
Kápan er nú nr. 4401 í Þjóðmenjasafni voru; var hún seld safn-
inu 2. okt. 1897 af þáverandi biskupi landsins, herra Hallgrími
Sveinssyni, og hljóðar kvittun hans fyrir móttöku andvirðisins á þessa
leið: »Forstöðumaður Forngripasafnsins hr. Jón Jakobsson hefir
greitt mér dómkirkjunnar vegna 600 kr. — sex hundruð krónur —
fyrir hina fornu biskupskápu, sem eftir sögn er frá tíð Jóns biskups
Arasonar«. Þessi sögn mun ávalt hafa haldist við þessa kápu eftir
að hún kom til dómkirkjunnar hér, og eins og dr. Jón Þorkelsson
segir (um 1893) í athgr. 2 á 607. bls. í 3. b. af ísl. Fornbrs. sagði
sagan að páfinn hefði sent Jóni biskupi Arasyni kápuna að gjöf1);
vÍ8t var það, að hún var til dómkirkjunnar hér komin frá dómkirkjunni
gömlu á Hólum, og eru þau munnmæli um þann flutning kápunnar,
að kaupamaður einn, er suður reið, hafi verið fenginn til að reiða
hana suður fyrir aftan sig. — Sagan um að kápan væri frá tíð Jóns
biskups Arasonar mun um það leyti er kápan var keypt til safnsins
hafa verið orðin eigi all-lítið styrkt við það, að þá hafði dr. Jón
Þorkelsson birt (í D. I. III. 606 o. s. frv.) lýsing Árna Magnússonar
prófessors á Hólakirkju, gerða um 1720—25; segir Árni svo meðal
annars: »Hola .Domkirkiu fylger ein prydeleg korkapa, af raudu
flöjele, kostulega bordyrud nidur ad barminum (o: á uppslögunum
‘) Fyrir þvi er þó enginn fótnr; það er einungis síðari tíma tilbúningur.
7*