Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Page 66

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Page 66
Tvær athugasemdir. Eftir Jón prófast Jónsson. I. 1 Árbók Fornleifafélagsips 1910, 28. bls., hefir Brynjólfur Jóns- son haldið því fram, að sveit sú í Vestur Skaftafellssýslu, sem er nú kölluð Fljótshverfi, hafi fyrrum heitið Skógahverfi. En þetta er vist misgáningur hjá vorum góða, gamla fræðimanni. Þar sem Skóga- hverfi er nefnt í Njálu (101., 126., 149., 150. k.), má ef til vill skilja það um Fljótshverfi, en þó virðist mér það engu síður geta á þess- um stöðum átt við sveit þá, sem er nú kölluð Slða, og Landnáma virðist mér taka hér af skarið, því að bæði er þar nefnt Fljótshverfi (Ldn. IV. 10: »Bárðr . . . nam Fljótshverfi alt«), og svo segir um ferð Una danska (Lun. IV. 4), að hann kom til Leiðólfs kappa í Skógahverfi, en landnám Leiðólfs hefir verið syðst eða vestast á Síðunni (»fyrir austan Skaftá«, Ldn. IV. 11). Eftir þessu sýnist sú sveit, sem kölluð er nú Fljótshverfi, hafa verið nefnd svo frá upp- hafi (sbr. Ljósv. 5. k.), en Skógahverfi legið sunnar og vestar, og tekið að minsta kosti yfir alla bygðina frá Fossi (sbr. Reykd. 20. k.) suður að Skaftártungu, en er stundir liðu fram og skógar eyddust, hafa menn heimfært upp á þessa bygð $éðw-nafnið, sem hefir upp- haflega náð yfir alt Skaftafellsþing eða meira (alla sjávarsíðuna frá Eyjafjöllum austur að Berufirði? sbr. Sturl. I. 208: »austr um Eyja- fjöll, ok svá austr á Síðu ok í Ver austr«. II. í sambandi við þetta minnist eg annars atriðis, sem eg get eigi verið Br. J. samdóma um, og stóð í Árb. Fornl. fyrir nokkrum ár- um (Árb. 1900, 14.—15. bls.). Það er um liðveizlu Steinþórs af Eyri við Hávarð Isfirðing og banamenn Ljóts spaka. Hér er Ldn. miklu betur trúandi en Hávarðssögu, sem er auðsjáanlega ýkt og mjög seint færð í letur, eflaust fjarri sögustöðvunum (sbr. F. J.: Litt. hist.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.