Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Qupperneq 72
74
flatar, þ. 0,4 sm., með víðu gati, og næstar grænu töl-
unni hins vegar má ætla að verið hafi /“., tala úr bláu
gleri tvöföld, eða sem tvær tölur samfastar, sívöl, þverm.
0,8 sm., lengd (þykt) 1,3 sm. Næstar bláu tölunni má
ætla að verið hafi g. og h., tvær grænar tölur, svip-
aðar b. Líklega hafa hér verið tvær grænar tölur
hvoru megin, því að leifar eru eftir af 5. grænu töl-
unni, i, og vantar þá eina enn. Yzt hefir verið á sörv-
inu annars vegar /., raftala flöt, þ. 0,6 sm., og allvel
kringlótt, þverm. 1,7 sm., gatið 0,5 sm.; hins vegar á
sörvinu hefir verið Jc., ferstrent stykki úr rafi, 1. 2,8
sm., þ. 0,8 sm., br. við annan endann 1,2 sm., en 0,8
sm. við hinn og gat í gegn um hann. Brúnir allar eru
ávalar, fletirnir eru allir 6 sléttir. Ef til vill hafa raf-
stykkin verið á sörvisþráðarendanum og verið aftan á
hálsinum. Líklega hafa ekki verið fleiri tölur á þessu
sörvi, en þær er nú var um getið. Eftir þeim sörvum
og sörvistölum, sem fundist hafa áður hér á landi, hefir
þetta sörvi verið að mörgu leyti einkennilegt. Bronzi-
kúlur eða -tölur hafa ekki áður fundist á sörvum hér
svo kunnugt sé, en raftölur, glertölur bláar og grænar
tölur svipaðar þessum, er hér fundust, hafa áður fund-
ist, þó einkum á sörvinu frá Brú á Jökuldal (nr. 4868
—71)1), 23 bláar: 13 einfaldar, 9 tvöfaldar og 1 fjór-
föld, sörvinu frá Brú í Biskupstungum (nr. 1197)2) og
Kornsár-sörvinu (nr. 1782)8). í Sandmúlafundi I.4) var
ein blá glertala sams konar og þær er hér fundust, og
í dysjunum í Granagili hefir fundist 1 sams konar (nr.
4065)6). Aftur á móti er engin tala í þessu sörvi af
þeirri tegund talna frá fornöld, sem mest hefir fundist
af hér á landi; þær tölur eru úr svörtu gleri með hvít-
um eða grænum böndum yfir og smáhnúðum með ýms-
um lit6). Steinasörvi þetta fanst í I. dysinni hjá Brim-
nesi, sbr. Árb. 1910, bls. 82—37). Dys þessi virðist hafa
verið kvenmannsdys.
5938. *6/6 Trébútar ryðfullir og járnbútar. Fundnir í sömu dys.
5939. — Brýni með gati gegnum annan endann, þann breiðari,
•) Sbr. Árb. 1903, bls. 18, og myndabl. I. ») Árb. 1880-81, bls. 53-56.
») L. c,, bls. 60 og 64. *) Árb. 1909, bls. 25. 6) Árb. 1895, bls. 36-42 (athgr.
á bls. 39). 6) Sbr. Sv. fornsaker nr. 575. ') Sbr. Aarb. 1910, bls. 62 o. s. frv. —
Málið þar á tölunum er ekki rétt.