Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Page 76

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Page 76
78 5971. S5/e 5972. — 5973. — 5974. — 5975. — 5976. — 5977. — 5978. — 5979. — 5980. — Brýnistúfur litill, 1. 11,6 sm., br. 1,5—2,3 sm., þ. mest 1 sm. Nr. 5968—71 eru úr XII. dys sama staðar og næstu nr. á undan. I sömu dys fundust mannsbein, hestsbein og hundsbein, nr. 6039—6041 hér á eftir. Leifar af steinasörvi, 5 glertölur (»steinar«). Ein er stærst, hnöttótt og með bárum að utan (8), úr glæju gleri (litarlaus); þverm. 1,4—1,7 sm., þ. 1,3 sm.; tvær þessari líkar eru á Kornsársörvinu (nr. 1782). — Tvær eru bláar, ein gul og ein græn, allar með svipaðri gerð, tvöfaldar, i rauninni tvær tölur samfastar hvor þeirra; — þessar tölur hafa verið gerðar margar í einni lengju samfastar en skorur á milli og svo brotnar hvor frá annari um skorurnar. Þær eru allar sunnan úr löndum, hafa verið búnar til Suður- og Miðevrópu. — Þessar 4 síðast töldu tölur eru fremur algengar, samskonar fundn- ar hér nokkrum sinnum áður; 1. 1,1 sm., þverm. 0,6 sm. Járnbútar 2, annar ef til vill af hnífblaði, beinmoli með gati, og skelbrot. Nr. 5972—73 eru úr XIII. dys sama staðar og næstu nr. á undan. Allir þessir gripir nr. 5937—73 eru sendir safninu af próf. Finni Jónssyni í Khöfn. Sjá ennfr. skýrslu hans og Daniels Bruuns í Aarb. f. nord. Oldkh. og Hist. 1910, bls. 62—100. Sigríður Pétursdóttir, Hlíðarhúsum i Reykjavík: Hval- beinshlunnur, bútur af hvalrifi, 1. 85 sm. Sama: Hvalbeinshlunnur, líkur 5974, grennri og styttri, 1. 75 sm. Sama: Fiskakrókar, til að bera fiska á; það er ávalt handfang úr tré, 1. 15 sm. og krókar úr járni útúr báð- um endum; brennimark H T S. Sama: Ýsuklóra, til að hreistra með ýsu; það er járn- þynna, 1. 11,3 sm., br. 3,5, á járntanga með tréskafti; á járnþynnunni eru oddar eða tannir, 12 hvoru megin. Sama: Seilarnál úr hvalbeini, til að seila flsk á seilar ólina, sem fest var í annan enda nálarinnar; 1. 28 sm.; sbr. nr. 5979. Sama: Seilarnál úr beykitré, óvönduð, 1. 25,5 sm.; sbr. 5978. Sama: Kúlur 7 af masturböndum, hafðar á efstu bönd-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.