Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Page 79
8i
6019.
6020.
6021.
6022
6023.
6024.
6025.
6026.
27/6 Blýhringur lítill, þverm. 1,1 sm.
Nr. 6017—19 eru að líkindum fundin á Austasta-Revð-
arvatni eða í Kongshól, eyðibýli, sem blásið hefir upp
skamt frá Yzta-Reyðarvatni. — öll þessi síðasttöldu 20 nr.
höfðu komið til safnsins fyrir allmörgum árum, en ekki
verið skrásett meðal gripa þess fyr en nú; sama er
að segja um næsta nr.
— Járnmél stakt með hring; lengd mélsins 9,5(!) sm., þverm.
hringsins 4,5 sm. — Fundið við Rangá þar sem þeir
Gunnar börðust (sbr. nr. 2447).
Húfa úr bronzi, lítil, ávöl, þverm. 1—1,1 sm., skákrossar
á hliðum og enda. Trjáleifar (af skafti á hníf?) eru
innan í. Fundin við Knafahóla.
— Hamól úr sútuðu leðri, 1. 33 sm., br. 10,5 sm., með eir-
hringjum og móttökum í. — Frá Þingnesi í Borgarfirði.
5/7 Brot úr altaristöflu allmörg; taflan hefir öll verið úr eik,
oliumálað spjald í urngerð, sem hefir verið um 93 sm.
að hæð, en stærð spjaldsins 59X45 sm. A spjaldið hefir
verið máluð krossfestingin, Kristur á krossinum, Maria
móðir hans við hægri hlið honum, en Jóhannes poBtuli
við hina vinstri. Spjaldið hefir verið límt saman úr
þrem fjölum og vantar nú miðfjölina. Umgerðin er í
»barok«-stíl, útskornar súlur til beggja handa; á efri
þverfjöl stendur A N N O 1644, en á hinni neðri tvær
ritningargreinir á dönsku. — Frá Stafafellskirkju.
— Hökulkross forn, st. 84X42 sm.; br. álmanna 14 og 13
sm. Hann er saumaður í gotn. stíl, varla yngri en frá
15. öld., saumaður með silki og gullsnúnum þræði. A
honum er hin heilaga þrenning: Kristur á krossinum,
þar fyrir ofan heilagur andi í dúfulíki, og efst guð faðir.
Krossinn er nú orðinn örslitinn og stórskemdur. — Frá
sömu kirkju.
9/7 Hökull úr blágrænu silkifluéli með tvölföldum silfur-
vírsborðakrossi og silfurvírsknipplingum fram með jöðr-
unum, fóðraður með bláu hörlérefti, bneptur á vinstri
öxl; orðinn gamallegur og melétinn. — Frá Hólakirkju
í Hjaltadal.
— Hökull úr gulbrúnu silkifluéli með rósrauðum og hvít-
um rósum, fóðraður með íslenzkum einskeftuvefnaði mó-
gráum úr ull; kross úr tvöföldum borða, köflóttum og
bekkjóttum, og er ofið i hann silki og gullnum þræði.
11