Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Side 82
84
6045. Vs
6046. —
6047. —
6048. —
6049. —
6050. 4/s
6051 a-j. —
6052 a-d. —
6053. —
6054 a-c. —
6055. —
6056. —
Sigurður Árnason í Kirkjuhvammi: Beizlishöfuðleður
gamalt úr islenzku leðri með stöngum úr járni, einkar
einföldum, ennislaufi og kverkólarspennu úr kopar.
Sami: Paramát, til þess að búa til krókapör með; er
það tréskaft lítið, 1. 7,7 sm., og naglar út úr endunum,
sem vírinn er beygður um.
Sami: Beizlisstöng úr eirblendingi, gömul og mjög
slitin; hún er með gömlu lagi, slétt og flöt, og að eins
11,5 sm. að lengd; eins beggja vegna, virðist þó vera
hægri.
Sami: Sjálfskeiðingur gamall úr járni, yfirkinnar vant-
ar á, 1. 13 sm., mun vera íslenzkur. Fundinn uppi á
afrétti og mjög ryðtekinn.
Sami: Fjöl úr furu, útskorin með stórgerðri leturlínu
og rósastreng undir, stendur á henni með gotnesku
smástílsletri, liku höfðaletri: farid ut um allan he.
Að líkindum hluti af vindskeið af kirkju í Kirkju-
hvammi; hún fanst þar undir kirkjugólfi. L. 172 sm.,
br. 18,5—26 sm.
Kvarnar-undirsteinn úr gljúpu hraungrjóti, eitlóttu,
fremur óvandlega höggvinn og ekki mikið slitinn, all-
vel kringlóttur, þverm. um 53 sm., hæstur og þykk
astur um miðjuna. Lítið gat, sem standurinn hefir
verið festur í, er í gegnum miðjuna.
Netsteinar tíu, einn þeirra stærstur og kann að hafa
verið á endareipinu; þeir eru allir með gati, sem er
þó ekki af mönnum gert á neinum þeirra. Meiri líkur
til að steinar þessir séu netsteinar en kljásteinar.
Brýnisbrot 4 að tölu úr þremur steintegundum; sbr.
nr. 5878.
Beintyppi lítið, nær sívalt, keilumyndað með broddi
upp úr og kraga um broddinn, dregst að sér neðst,
hæð 2,9 sm., þverm. mest 1,5—1,8. Ef til vill úr hnef-
tafli, sbr. 5968.
Greiðubrot þrjú, eitt stærst, með hluta af kinnunum
beggja vegna og er útskorið verk á þeim. Sbr. nr.
5775 og 5881.
Hnífblað úr járni mjög stutt, 4,5 sm., og tangi á (1. 3
Bin.); br. 1,7 sm.
Hnífblað úr járni með broti af tanganum á, 1. alls 7,9 sm.