Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Page 83

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Page 83
85 6057. Vs 6058 a-f.— 6059. — 6060. — 6061. — 6062. 5/8 6063. 18/8 Járnnaglar og brot af járnverkfærum, alls 22, ryðrétið og torkennilegt. Tennur tvær, jaxlar, úr stórgrip. Nr. 6050—58 voru sendir safninu af H. Erkes frá Kölnarborg; kvað hann sig og samferðamenn sína hafa tínt þá úr rústaleifunum hjá Sandmúla (sbr. Arb. 1909, 24—31) 11. júlí s. á. Brot af vefjarskeið úr hvalbeini, 37,8 sm. að lengd, br. mest 3,8 sm.; vantar framan af blaðinu. Sbr. 5770. Snældusnúður úr rauðleitum steini, hálfkúlumyndaður; þverm. 4,1 sm., þ. 2,1 sm. Nr. 6059—60 voru sendir safninu af sama manni og sendi næstu nr. á undan; kvað hann þessa tvo gripi vera fundna í Sandmúlarúst fyrir 5 árum síðan eða þar um bil af Jóni Þorkelssyni frá Jarlsstöðum1). — Allir eru gripir þessir fornir, liklega frá landnámsöld og að því leyti merkilegir; eru þeir Sandmúlafundur III (sbr. nr. 5770-82 og 5869—84). Hólkur úr látúni með botni úr blýi í öðrum enda, og er þar grannur látúnsteinn í gegnum hólkinn; uppi við hinn endann stendur út eyra með gati. Innan í er járnhólkur efst. L. 7 sm., þverm. um 3 sm. Gripur þessi var sendur safninu af sama manni og þeim er sendi síðasttalda gripi og er sagður fundinn af sama manni (J. Þ.) og á sama stað, en virðist eftir öllu útliti að dæma ekki geta verið forn. Mun vera hluti af ein- hverju verkfæri. Sauðafellskirkja: Skarbítur úr kopar með samsettum töngum, gengur liðóttur sívalningur yfir samskeytin (sbr. nr. 4798, 5738 o. fl.). Húsið með pressuðu verki, flött- um erni (eða gammi); á lokunni eru stimplar: hestur á miðju loki, sem er merki bæjarins, og stjörnur, máske að eins til skrauts, úti við brúnirnar; á tangana hefir verið settur stimpill, líklega smiðsins: 4 hringar í röð. L. 19,8 sm. ölkanna úr gráum leiri (»steini«), með bláum skraut- myndum: fugl, og greinar beggja vegna við hann; lok hefir verið á; fremur óvönduð en mjög gamalleg; hæð l) Sami maður hafði og fundið brot af snæidusnúð úr rauðum steini og fylgdi það með gripum þessum; það er brot af sama snúðnum og nr. 5776 og var þvi talið með þvi nr,

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.