Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Qupperneq 67
71
talin. (Meira um Bakkabæina er sagt í Sögu Oddastaðar, bls. 154-6).
Byrja eg upptalningu þessa austast á Bakkabæjum.
13. S tórholt. Það er nokkuð langt suður frá Þverá, og er 1861
talið grasbýli úr Uxahrygg. Getið er þess fyrst 1825, og varaði
byggðin til 1883. Guðlaugur Erlendsson flutti þá að Lambhaga og
bjó þar lengi síðan.
14. Blábringa, líklega örreytiskot úr Uxahrygg, og aðeins fárra
áratuga býli á 19. öld. Var svo sem 1 km. ssv. frá Galtarholti. Bær
sá stóð næst sjó á Rangárvöllum, en átti þó ekki land að sjó, og
enginn annar bær þar heldur. Byggðar finnst þar getið hálfa öld,
1856—1906.
15. Markhóll, hjáleiga frá Eystra Fróðholti og minna en annað
afbýli, Galtarholt, sem verið hefir í byggð. Markhóll var svo sem 2
km austur frá Galtarholti. Byggður 1828 og eyðilagður 1881.
.16. Fróðholtshóll, hjáleiga frá Vestra Fróðholti, oftast nefnd
Hóll einungis (og var þar lengi „Hallur í Hólnum"1). Fyrsta byggð
þar um 1828 og síðasta 1907.
17. Litla Bakkakot (,,Bakkakotskot“). Það var 2 km austur
frá Ártúnum, hálfu nær ánni (50 faðma) en Bakkakot. Bæði kotin
eru nærri því túnlaus vegna bleytu og láglendis. Byggðin hélzt eina
öld, 1801—1905.
18. Ártúnakot, var tæplega 1 km ssv. frá Ártúnum, sem eru
nú tveir bæir stórir, vestasta byggðin, þar sem austurvötnin mæta
Ytri Rangá og renna saman um Djúpá (Hólsá) suður til sjávar, um
þann gamalkunna Rangárós. Ekki er kotið til 1703 né 1803, og mun
ekki byggt fyrr en um 1830, þá fyrst er nefnt 3. býli í Ártúnum.
Kotið fór í auðn 1904, vegna yfirgangs Valalækjar, er braut sér far-
veg mikinn austur úr Hólsá. Reynt var að stífla Valalæk á þeim árum,
fyrir 1800, þó ekki í húsvitjunarbókum Odda fyrr en 1840. Áður hét bærinn
Hátún.
1) Heyrt hefi ég sagt (en fullyrði ekki), að vísan hér neðar sé ort um
Hall þenna og í orðastað stúlku, jafnvel bústýru hans. Og má ætla, að
Hallur hafi þá verið talsvert kenndur:
Ertu fallinn, elsku Hallur?
— angrað ber ég geð.
Blessaður, elsku, blíði Hallur,
berð’ig að staulast með.
Ég leiði þig um lífsins dimma stig;
elsku, bezti, hjartans Hallur,
hugsa þú um mig.