Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Síða 4
8
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
hestaréttar sem eitt sinn stóð sunnan við skála. I skemmuna er geng-
ið af hlaði, en úr henni innst eru dyr til Jcofa norður af. Sá kofi er
nýlegur. Austan við kofann, skemmuna og stofuna en norðan við
eldhúsið eru leifar fjóss. Vestur- og suðurveggur þess stendur, en í
stað hinna er annarsvegar kominn steinsteyptur og nýlegur hlöðu-
veggur en hinsvegar timburþil. Spölkorn suður af bænum stendur
kirkjan ögn hærra. Á hlaðinu milli kirkju og torfbæjar er svo íbúð-
arhús heimamanna.
Bæjardyr og göng. Bæjardyratóftinni. sem er 2.70 x 6.20 m, má
skipta í tvennt. Fremri htluti hennar er eiginlega sjálfstætt hús,
portloft eins og þau voru kölluð, í þremur stafgólfum, alþiljað hið
efra en einungis í eystri (innri) enda niðri, skorðað með skakkslám.
Stafir allir standa á stoðarsteinum að fornum sið, en smærri steina-
röð er undir þverstokkum. Innri hluti bæjardyranna er lausbyggð-
ari, án ports og þilja, tvö mislöng stafgólf. Úr þessum hluta er
gengið í portloftið um stiga og þaðan á pall aftur úr loftsgólfinu
að hluta til. 1 loftinu sjálfu er skarsúð á sperrum en spjaldþil í
veggjum. Allt málað. I innri bæjardyrum bak dyra, sem eru í þil-
inu niðri, stendur kvarnarstokkur með steinum í. Gluggi er í þekj-
unni sunnanmegin. Á útistafni er standþil, prýtt útsniðnum vind-
skeiðum, lágar dyr með klinkuhurð, og er úr dyrunum stigið niður á
steypt þrep, og þriggja rúðu gluggi sem upphaflega hefur þó verið
með fjórum rúðum. Norðanmegin dyra neðst er hundagátt. Undir
vindskeiðaendum eru fjalabútar, sem gætu verið seinni tíma viðbót.
Hugsanlegt er að lausbolt loftsins hafi í eina tíð staðið út úr þilinu
(2. og 3. mynd).
1 bæjardyragrindinni eru greinilega ýmsir viðir úr eldri húsum á
víð og dreif, fjórir innstu stafirnir og lausholtaspottar ofan á þeim,
skrkkslár í öðru stafgólfi frá útþili og skarsúðarfjalir í lofti.
Þrennskonar strikgerðir er þar að finna. Ósamhverft S-strik eins og
á viðum skála er á lausholtunum tveim. Tvöfalt rómanskt kílstrik
líkt og á viðarleifum í eldhúsi, búri, stofu og einum staf í skála er
á fjórum innstu stafanna. Auk þess eru spor og gróp á þessum við-
um. Einungis spor eru á þeim innstu, 1 og 4. sem skipa má í tvo
flokka, langspor og stuttspor. Á þeim fremri, 2 og 3, eru framar öllu
gróp á annarri hlið, sem endar í spori. Á 2 er þó eitt stuttspor í lík-
ingu við þau á innstu stöfunum. Á lausholtinu syðra, sem liggur á
stöfum 1 og 2, eru líka spor og gróp, en ekkert á því nyrðra. I loft-
inu eru 13 súðfjalir auk nokkurra annai’ra í austurþilinu með sama