Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Síða 11
12
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
neðan aftanvert. Á einum staf 7 er hinsvegar tvöfalt rómanskt kílstrik
af sömu gerð og á viðunum áðurnefndu í stofu, bæjardyrum, búri og
eldhúsi.
Gróp er ofan og neðan á gaflbitum báðum, neðan á syllunum tveim,
þar að auki bita III og ofan á parti af bita II. Þá er gróp á vestari
hlið stafa 1 og 7, nyrðri hlið stafs 5 og framan á staf 9. Spor eru
neðan á bita I, III og IV, en ofan á bita II. Auk þess eru spor, stutt-
spor og langspor, ýmist framan á eða á hliðum stafa 2, 3, 4, 6, 7, 8,
og 9 (12., 13., 14. og 15. mynd).
Skeruma. Skemman er 3.50—3.70 m á breidd en 7.70—7.80 m á
lengd. Breidd milli syllna 3.26 m, milli stafa 3.05—3.18 m, en bita-
lengdin 3.63 m. Hæð frá góifi í sperrutopp er um 3.50—3.70 m,
undir bita 1.74—1.96 m og frá neðri brún á bita í sperrutopp 1.54—
1.70 m. Stafgólfalengd er 1.54—1.56 sunnanmegin í fjórum þeim
innstu, en það fremsta er 1.48 m. Norðanmegin er það eins fremst, en
síðan eru þau, talið inn eftir, 1.35, 1.60, 1.70 og 1.65. Ekki eru hlutföll
milli hæðar og breiddar eins nálægt 1:1 og í skála né er neðri brún
á bita jafn skýlaust i miðri hæð hússins, en fjarri er það ekki. Hins-
vegar er grunnmyndin langt í frá að vera 1:2. Eins eru stafgólfalengd-
ir ójafnari hér en í skála og gefa ekki sérstaka vísbendingu um að
stuðst hafi verið við fast alinmál (3., 5. og 7. mynd).
Skemman er byggð upp líkt og skálinn með stöfum, syllum, bit-
um, sperrum, langböndum og reisifjöl en engum áfellum. Allur er
laupurinn ósamstæðari og þarfnast því nánari lýsingar. Fyrst er þá
að líta á stafina (17.—20. og 26. mynd). Fjórir þeirra skera sig úr
sakir gildleika, lögunar og efnis. líeita má að þeir séu sívalir, 23 til 27
cm í þvermál, úr beinhörðum rauðaviði og marka þrjú stafgólf um
mitt hús. Hinir stafirnir átta eru minni um sig, úr öðru efni, fer-
strendir að mestu, þó með ávala að aftan og afskornum hornum að
framan. Sívölu stafirnir allir eru með fleiri en einu þilgrópi. Stafir nr.
2, 7 og 10 eru með tveimur grópum en nr. 5 er með þrem. Sum grópin
ná stafina á enda en önnur skemmra. Upphaflega virðast allir þessir
stafir hafa verið sívalir, en nú er búið að skerða þá, einkum neðri
hluta og bakhliðar. Á tveim fremstu eru þau eyru í burtu, sem inn í
húsið snéru. Stórt spor er í staf nr. 10 aftanverðum rétt fyrir neðan
syllu og í því syllu- og naglaleifar. Annað spor snýr að vegg, er neðar,
en álíka stórt, og tvö minni, annars eðlis, á stafnum miðjum og snúa
inn í húsið. Efst í stöfum þessum er djúp klauf fyrir syllu og önnur
grynnri hornrétt á hana fyrir bita. Hinir stafirnir sex eru grennri,
G. mynd. Þversnið skála. M 1:50.
7. mynd. Þversnið skemmu. M 1:50.