Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Qupperneq 12
14
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
öðruvísi í laginu og úr ljósara efni. Tveir þeir fremstu koma ekki
við sögu hér, þeir eru nýsmíði. Stafir nr. 4 og 9 eru strikaðir á einu
horni frá efri brún rétt niður á miðjan staf og með ílöngu spori í
gegn. Þó gætu strikin hafa máðst af vegna slits neðan til á þessum
stöfum. Stafur nr. 1 er með þilgrópi, sem snýr inn að vegg og sams-
konar spori- að neðan og stafur nr. 9. Á nr. 4 nær það í gegn.
Stafir nr. 3 og 6 eru líkir og engin smíðaummerki að sjá á þeim né á
nr. 8, sem er þeirra efnisminnstur. Allir mega stafirnir heita
svipaðrar hæðar, eða í kringum 1.90 m, með djúpum klofa fyrir
syllur, utan einn, sem er með stalli, en þverklofar fyrir bita eru
miklu grynnri en á sívölu stöfunum, á sumum engir. Syllan sunnan-
megin er í þrem pörtum. Sá fremsti sem nær einungis yfir eitt staf-
gólf er nánast slá úr mótatimbri, sem tyllt hefur verið í sæti eyrans
á staf nr. 5. Þá kemur miðparturinn sem nær yfir þrjú stafgólf með
þilgrópi að neðan, striki, naglagötum fremst og skertur að hluta til
að ofan. Loks kemur sá innsti, sem nær yfir eitt stafgólf, með þil-
grópi að neðan, strikum báðumegin við neðri brúnir og þrem skom-
um bogum að ofan, síðasttöldu syllupartamir koma saman þynntir
í klofa á staf nr. 2 (5. og 21. mynd). Norðanmegin er sami frágang-
ur í fremsta stafgólfi og að sunnanverðu, því næst kemur sylla sem
nær þrjú stafgólf líkt og hinumegin og loks partur í innsta stafgólfi
norðanvert. Syllupartarnir norðanmegin eru ámóta langir og að sunn-
an, en ívið grennri. 1 miðstafgólfi hefur efri hluti syllunnar brotnað af
og sumstaðar er hún klofin, skemmd og skæld. Hún er með þilgrópi að
neðan og strikuð á neðri brún. Innsti sylluparturinn er mjórri, með
grópi að neðan og sérkennilegu spori að ofan (24. og 27. mynd). Bit-
amir læsa syllum og stöfum líkt og í skála, tveir í miðju húsi settir
strikum á hvora hlið. Sperrurnar, sem á bitum sitja eru ívið grennri
en bitar, blaðaðir saman að ofan líkt og í skála, nema hér sjást mæni-
tróðusætin greinilega. Tvennar eru strikaðar við neðri brúnir, þær á
þriðja og fimmta bita frá útgafli, með sporum á efri brún fyrir
langbönd með kubbum í öðrumegin í húsinu. Langböndin sem nú eru
notuð eru ný og liggja flest þeirra ofan á sperrum. I þrem innstu
stafgólfunum liggur gömul reisifjöl yfir þessum nýju böndum, en
spýtnarusl og bárujárn í tveim þeim fremstu. I innstu fjölina norðan-
megin er skorinn gluggur 12x10 cm að stærð, með beinum iiliðum
og neðri brún, bogmyndaður að ofan, með fláa í þversniði. Á annarri
fjöl þar frá er strikuð fjöl (22., 23. og 25. mynd).
Þegar ég var að mæla upp Hólabæinn sumarið 1966 lá í norður-
þekju útskorin fjöl, sem nú er komin á Þjóðminjasafn og fræg er