Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Blaðsíða 22
24
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Keldnaskálann að í honum eru einustu vitnin um rúmstæðasmíð
hins forna íslenska svefnhúss, sem vert er um að tala. Til er að
vísu einn og einn stafur á stangli innan um annað óskylt, og gæti
verið úr horfnum skálum, en í Hólum standa stafir með sínum rúm-
stæðamörkum. Það er því ekki í annað hús að venda eigi að vera
von til að g'löggva sig, þó í smáu sé, á innréttingu svefnskálans forna.
Sporin á skálastöfunum trúi ég séu flest eftir horfin rúmstæði.
Freistandi er því að gera sér grein fyrir hverskonar smíð þau hafi
verið.
Eins og fyrri daginn er elíki úr miklu að rnoða, en draga verður
það samanburðarefni sem til er fram í dagsljósið og sjá síðan hve
langt er hægt að komast. Á Þjóðminjasafni er til einn rúmstuðull úr
skála, frá Ljárskógum í Dölum. Ef við hugsum okkur hann settan
í hæfilega rúmbreidd fyrir framan skálastaf nr. 8, þá samsvarar
miðsporið í honum sporinu í Ljárskógastafnum og við gætum sett
slá í sporin (44. mynd). Það sama er hægt að gera niður við gólf. Hak
er neðst í Ljárskógastafnum sem félli að slá er sett væri í næsta spor
á staf 8. Nú er búið að skerða svo rúmstuðulinn að ekki er hægt að
ganga úr skugga um hvort í honum hafi verið spor er samsvari efsta
spori á staf 8, en vel gat það verið. Ekkert virðist hins vegar vera á
stafnum samsvarandi mjóa sporinu neðra á staf 8, en það hlýtur að
hafa verið á sínum tíma á viðkomandi rúmstaf í Hólum. Á einni hlið
Lj árskógastafsins er gríðarlega mikið spor, sem áreiðanlega er eftir
rúmstokk og brík. Hliðstæðu má enn sjá í Þjóðminjasafni í rúm-
stöfunum frá Laufási og Bakka í Öxnadal. Nú mætti hugsa sér annan
rúmstaf í viðbót, líkan þeim frá Ljárskógum, settan stafgólfslengd
framar og hann tengdan samsvarandi skálastaf líkt og gert var með
þann fyrri. Langa hliðarsporið á staf 8 gæti komið sér vel til að setja
þar rúmstokk og brík eins og að framanverðu. Það sem nú vantar er
botninn og e.t.v. þil neðan stokks eins og á Laufás- og Bakkarúmun-
um; það fór eftir því hve „fínt“ rúmið var. Samkvæmt þessari til-
raun getur hæðin upp á efri brún rúmstokks orðið frá 70 upp í 90 cm.
Þetta kemur heim og saman við samsvarandi rekkjubúnað norskan
og úttektarlýsingar af rúmstæðum í íslenskum skálum. Þráfaldlega
er þess getið að fyrir rúmum séu skarir og upp á þær tröppur.
Enn eru spor á grindarviðum skálans, sem vert er að huga nánar
að. Á næstinnsta bita neðanverðum, nr. IV, eru tvö spor. Það nyrðra
í 70 cm f jarlægð frá staf, það syðra 55 cm. Neðan á miðbitanum nr. III
eru þrjú spor og gróp eftir endilöngu. Tvö sporanna eru samhverf um
miðju bitans, bilið á milli þeirra er 64 cm. Það þriðja er minna og