Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Síða 58

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Síða 58
60 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Langböndin strikuðu í búri falla svo til beint á sperrusæti sín. Ekki er með góðu móti nú hægt að mæla nákvæmlega lengd þeirra, en þau eru einhversstaðar á bilinu 4.30—4.80 m á lengd. Enn er þess að geta að í ræfri búrs er fjöl með sama striki og allir þeir viðir sem nú hefur verið fjallað um, og gæti vel hafa verið súðfjöl. Undir lokin snúum við okkur fram í bæjardyr innri. Þar eru fjórir stafir með sama striki og á þeim viðum sem nú um sinn hefur verið fjallað um. Þá má flokka í tvennt, sporastafi og grópstafi. Spor- in á sporastöfunum eru greinilega sömu ættar og sporin á skála- stöfunum. Þau bera merki rúmstæða. Miklar líkur eru hinsvegar til að sporin þau arna séu sett eftir að strikun viðanna átti sér stað. Séu þessi spor eftir rúmbríkur og stokka, sem engin ástæða er til að efast urn, eru strikin, sem ganga meðfram þeim, algjörlega tilgangs- laus, þau myndu ekki sjást. Sporastafirnir tveir eru strikaðir báðu- megin við brúnir. Ef við lítum inn í skemmuna einu sinni enn og virðum fyrir okkur snið strikuðu bitanna þar, kemur í ljós að þeir eru nák\ æmlega jafnbreiðir og sporastafirnir. Auk þess eru strik við neðri brúnir sett með svipuðum hætti, þó ekki séu þau sömu gerðar. Ég læt mér því detta í hug að sporastafirnir séu skertir bitar, búið sé að taka ofan af þeim og þar með strikaparið við efri brúnir (28., 36. og 39. mynd). Þá kemur að grópstöfunum. Þeir eru báðir með gróp eftir endi- langri annarri hliðinni, sem endar í spori. Á öðrum þeirra er svo spor með svipuðu lagi og á sporastöfunum gegnt gróphliðinni og stutt gróp á hinum. Sá síðarnefndi er styttri og er á hvolfi eins og hann stendur nú í bæjardyragrindinni. Báðir þessir stafir sverja sig skilyrðislaust í ætt við staf 7 í skála. Þeir eru jafnbreiðir, eins strik- aðir og með gróp á annarri hlið, sem endar í spori. Eg tel að sporin hljóti að vera eftir aursyllur tvær, aðra þykka og lága og aðra mjóa og háa. Þetta fyrirkomulag samsvarar að nokkru leyti umbúnaðin- um á stöfunum að neðan í Grafarkirkju. Grópið hlýtur að vera eftir þil, en sylluklofann vantar, sem hlýtur að stafa af því að búið er að stytta stafina. Hinsvegar er torskýrðara hversvegna þessi umbún- aður er aðeins öðrumegin (31., 36. og 39. mynd). Nú skulum við virða fyrir okkur hvað við höfum handbært í hús af þeim viðum sem strikaðir eru tvöföldu rómönsku kílstriki. Það er þá fyrst að nefna leifar af ræfri húss, sem gæti hafa verið um 4.80 m á breidd. Ur því eru til gaflsperrubrot sem í hefur verið þil og skammbiti, og hluti úr honum er til. Enn er að finna annað gafl- sperrubrot, sem einnig hefur verið þil í, en engin skammbitaför að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.