Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Side 82

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Side 82
84 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS um leg-siein Páls, að hann er ekki gerður fyrr en nokkru (en þó lík- lega skömmu) eftir andlát hans. Margir hafa veitt legsteini Páls at- hygli og minnst á hann í ritum, en mér vitanlega hefur enginn reynt að gera sér grein fyrir hvar í flokk honum skuli skipa eða hver mnni hugsanlega vera steinsmiður sá sem hann úthjó. Það er þó hægur- inn hjá að komast að þessu, því þó satt sé að steinninn eigi engan sinn líka á Islandi, er hitt ekki síður satt að hann á marga sína líka í Danmörku. Til að komast að raun um þetta nægir að fletta hinu stórmerka riti Chr. Axel Jensens: Danske adelige Gravsten fra Sen- gotikens og Renaissancens Tid I-III) Kobenhavn 1951—53. Þessi smágrein er skrifuð til að vekja athygli á þessu. Áður en lengra er haldið er ekki úr vegi að lýsa legsteini Páls Stígssonar í helstu atriðum, þótt vitanlega sé honum best lýst á myndinni sem grein þessari fylgir. Steinninn er sjálfsagt ekki úr marmara þó að svo hafi oft verið sagt, heldur úr hvítleitum gotlensk- um kalksteini eins og þorri legsteina af hans ætt og frá hans tíma í Danmörku. Gotland var þá hluti af danska ríkinu. Þykkt legsteins- hellunnar er 15 cm, hæð hennar eða lengd 197 cm og breiddin 131 cm. Steinninn er nokkuð slitinn og víða eru nú flísar sprengdar upp úr yfirborði hans, enda hefur lengi verið á honum traðkað á kirkju- gólfinu. Bót var að skósólar manna voru mjúkir fyrr á tíð, annars hefði verr farið. Þetta er lýti á listaverkinu, en það stendur þau þó býsna vel af sér vegna þess hve stórt það er í sniðum. Og engin smá- atriði fara með öllu forgörðum af þessum sökum. Skipta má verkinu á steininum í tvennt: Allan meginhluta steins- ins með miklu upphleyptu mvndverki, og neðst afmarkaðan sléttan flöt sem á er áletrun með innhöggnu letri. Við byrjum á efri part- inum. Myndverkinu má lýsa á þessa leið: Á miðjum steinfletinum er mynd (eða ímynd) hins látna aðalsmanns, og er hann sýndur stand- andi í öllum herklæðum. (Oft er bent á þessa rökleysu, að maðurinn stendur fast í fætur, þó að steinninn að sjálfsögðu eigi að liggja flatur á gröfinni; hins vegar færi þetta vel ef steinninn ætti að standa upp á endann, eins og steinn Páls gerir reyndar nú í Bessa- staðakirkju). Andlitshlíf hjálmsins er dregin upp og sér þá í and- litið hálfvegis frá hlið, en hökupoki hjálmsins hylur hökuna. Svip- urinn á andlitinu er frekar grimmúðlegur og stafar það af því að djúpar holur eru í augnsteina stað. Strikað skegg sést á efrivör. Um háls og handleggi og brjóst er járnkragi og brynja en á höndum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.