Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Side 119

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Side 119
SAGA HESTALÆKNINGA Á ÍSLANDI 121 lensk ráð; stundum er þeim skift í ráð úr þjóðtrú og ráð af öðrum toga. Þar sem heimildir leyfa er reynt að rekja að hve miklu leyti slík ráð eru staðbundin, og einnig hvenær þau hafi komið til og hvenær þau hafi lagst niður. Að jafnaði fjallar svo höfundur sérstaklega um alþýðleg ráð á Norðurlöndum og sýnir fram á það sem er sameiginlegt og ólíkt þar og á Islandi, og þær ástæður sem kunna að vera til þess. Stundum hafa hestar og aðrar skepnur, og jafnvel menn, þjáðst af sömu sjúkdómum og kvillum, og ráðin við þeim hafa verið hin sömu eða sams konar. 1 þessurn tilfellum víkkar höfundur oft samanburðinn, þó hann hafi sjálfsagt þurft að stilla slíku í hóf. Af þessum vinnuaðferðum leiðir að hver kafli myndar sjálfstæða heild, og þær niðurstöður sem dregnar verða í hvert skifti hafa sérstakt gildi. Rókin er því orðin hið þarfasta uppsláttarverk. Auðvitað eru hér ekki tök á að ræða nema fáein atriði. Almennt má segja að höfundur reyni oft að sanna, að margt sem hefur verið talið þjóðtrú án undirstöðu í heimi veruleikans, hafi við reynsluvit að styðjast. Dæmi um þetta er sú hugmynd íslenskra bænda að fylfull meri myndi láta fyl- inu, væn henni gefið fjósmoð (bls. 273). Houser telur að slíkt geti átt sér stað og stæði í sambandi við geril (Bac. listeriosis) sem vex í skemmdu heyi. Um þetta hefur hann skrifað grein í Árbók hins íslenska fornleifafélags 1971. Þar sem hrossasótt var læknuð með því að ríða hestinum sprett (bls. 57) og það er líka tiltekið að best væri að láta óspjallaða mey ríða hestinum eina bæjarleið, eða þrjá hringi berbakt kringum hæinn, hendir höfundur á að ráðið sé skyn- samlegt að því leyti að gott sé fyrir hesta sem þjást af hrossasótt að hreyfa sig, en ekki að hera of þunga hyrði eða fara of langt. Svona mætti lengi áfram telja, en þessi dæmi verða að nægja. Athugasemdir af þessu tagi eru mikil- vægar ef þær eru réttar. Sjálfur efast ég ekki um að svo sé oft, en þetta eru einmitt atriði sem dýralæknar þurfa að leggja dóm á . 1 skýringu á mismun miili lækningaráða og tíðni ýmissa sjúkdóma á Islandi og á Norðurlöndum sýnir Houser mikla nærfærni. Það sem skýrir sérstöðu ís- lenskra hc-stasjúkdóma og hestalækninga er meðal annars kyn íslenska hestsins — á íslandi er eins og kunnugt er aðeins um eitt hestakyn að ræða — veðrátta og önnur landfræðileg og liffræðiieg einkenni landsins, sem mynda góðan jarð- veg fyrir ákveðna sjúkdóma en hamla gegn öðrum, hirðing eða vanhirða hest- anna (útigangur o.fl.), notkun íslenskra hesta sem reiðskjóta og áburðarhesta fremur en dráttardýra, efni og gerð þeirra reiðtygja sem notuð hafa verið á Is- landi o.s.frv. Hér í þessum meginköflum bókarinnar reynir Houser siður en svo að einfaida fyrir sér málið, heldur bera skýringar hans vott um marg- breytni og hugmyndaafl. Auðvitað er það sú staðreynd að margt á Islandi er líkt því sem gerist í öðrum löndum, að því viðbættu að við kunnum góð skil á þeim sögulegu, þjóðfélagslegu, landfræðilegu og lífeðlislegu ástæðum sem mismunur kann að stafa af, sem gerir Island svo mikilvægt fyrir þjóðfræðinga — og ég gæti líka trúað fyrir dýralækna og lækna. Iiér er slík þekking, eins og eðlilegt er, að mestu leyti notuð til þess að skýra sérstöðu íslenskra hestalækninga, en sjálfsagt er einnig unnt að snúa þessu við til þess að skilja sérstöðu Norðurlanda. Ef fleiri menn skildu hvað í þessum samanburði býr — og það getur ekki dulist mönum er Jesa ritgerð Housers —- myndi að minnsta kosti hver þjóðfræðingur skilja, að það er þess virði að leggja á sig að læra íslensku!
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.