Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Síða 142

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Síða 142
144 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS og mjög misvel eftir landshlutum. Var þá afráðið að framlengja frestinn til 1. mars 1978 í von um betra úrtak, enda lét nærri að fjöldi þátttakenda tvöfaldaðist við þá ítrekun. En af nefndum sök- um á greinargerð um þessa fyrirtekt alla betur heima í skýrslu fyrir árið 1978. Dagana 27. júní til 18. júlí dvaldist starfsmaður deildarinnar í Manitobafylki, Kanada, með styrk frá nefnd utanríkisráðuneytisins, sem fjallar um aukin samskipti Vestur-lslendinga og fyrirgreiðslu Þjóðræknisfélags Tslendinga. Fer hér á eftir stutt greinargerð um kynnisferð þessa, sem afhent var utanríkisráðuneytinu: „Tilgangurinn með þessari fremur stuttu för var einkum að kanna með úrtaki, hvort ástæða væri til að hefja rækilega þjóðháttasöfnun meðal Vestur-lslendinga, en slíkt fyrirtæki er afar tímafrekt, ef það á að verða annað en kák eitt. Á þessum tíma heimsótti ég Winnipeg, Selkirk, Gimli, Riverton, Mikley og Árborg, hitti fjölda Vestur-Tslendinga að máli og kom á fundi, samkomur og söngæfingar hjá þeim. Allýtarleg samtöl átti ég við um 30 manns á aldrinum 75—95 ára. Voru þau sumpart tekin á segulband, en að nokkru punktuð niður. Niðurstaða þessara athugana varð aðallega tvennskonar: 1) Mjög lítið er orðið eftir af fólki, sem man eftir sér frá Tslandi. Þeir hinir fáu hafa hinsvegar einatt margt athyglisvert fram að færa. Minni þeirra er stundum einkennilega skýrt, hvað snertir tíma- bilið kringum hin miklu umskipti, sem búferlaflutningarnir voru. Ég nefni sem dæmi Jón Pálsson, 90 ára, sem fór 7 ára gamall vestur frá Reykjum í Skagafirði, en geymdi þó með sér skýrar þjóðlífs- myndir úr bernsku. Ég tel það væri gerlegt fyrir 1—2 menn að ná mikilvægustu upplýsingunum frá þessum tiltölulega fámenna hópi á nokkrum mánuðum. 2) Hitt er miklu umfangsmeira mál, en virðist ekki síður athyglis- vert, hvaða þjóðsiði og trú fólk flutti einkum með sér vestur og hvað var skilið eftir og hversvegna. Hvað af þeim siðum og trú lifði áfram og hvað dó út eða breyttist frá kynslóð til kynslóðar, hvar, hvenær og hversvegna. Eg þóttist geta dregið þá bráðabirgðaályktun af þessum áþreifing- um, að menn hefðu hneigst til að taka með sér þær venjur og þjóðtrú, sem góðar voru og gleðilegar, einsog t.d. sumardaginn fyrsta, en skilja hinar óttablöndnu eftir heima, svosem t.d. Grýlu og drauga, eða milda þær a.m.k. Er þetta raunar í samræmi við það, að fólkið flutt- ist burtu í leit að betra lífi, og þá mátti sýnast ástæðulaust að flytja
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.