Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1978, Side 151
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS 1977
153
Aðeins var unnið lítillega að viðgerð kútters Sigurfara á Akra-
nesi og á hún í rauninni langt í land. Á Hnjóti var hafin bygging
húss yfir byggðasafnið, en það er nú orðið eign Vestur-Barðastrand-
arsýslu samkvæmt samningi milli sýslu og Egils Ólafssonar bónda á
Hnjóti, sem lagt hefur grundvöll að safninu með mikilli elju við
hvers kyns gripasöfnun á undanförnum árum. Á Akureyri var haldið
áfrarn vinnu við nýbyggingu safnsins við Kirkjuhvol og á Höfn var
gamla verslunarhúsið, Gamla búðin, sem upphaflega stóð á Papós,
flutt á nýjan grunn nokkru innan við kauptúnið, þar sem byggða-
safnið mun verða í framtíðinni. I Skógum var lokið við að endur-
l>yggja krossfjós frá Húsum í Holtum svo og byggingu stofuhúss, sem
að mestu er frá Götum í Mýrdal. Voru þessar framkvæmdir helstar
við byggðasöfnin.
Sjóminjasafn.
1 rauninni hefur ekkert gerst frekar í málum þess nerna hvað
haldið er stöðugt áfram söfnun hvers kyns sjóminja eftir föngum.
Getið er söfnunarferðar um Vestfirði, og nefna má að Sjóminjafé-
lagið í Hafnarfirði lét hefja viðgerð bátsins Geirs frá Grindavík, sem
var í rauninni flak eitt og þurfti að endursmíða bátinn nær því að
öllu leyti. Var honum nú breytt í róðrarbát sem vafasamt er, þar
sem hann hafði verið hækkaður við það að honum var breytt í vélbát
á sinni tíð. Ætti því annaðhvort að breyta honum í vélbát að nýju
eða borðlækka hann, svo að hann hafi sama lag og þegar hann var
árabátur. Báturinn er hins vegar merkilegur, því að hann er með
svonefndu Hafnalagi, eina skipið sem til er með því lagi. Reyndist
aðeins unnt að gera við byrðing bátsins á árinu, en það verk var
unnið í Bátalóni í Hafnarfirði.
Þá var báturinn Leifur, sem fyrr hefur verið getið í skýrslu, flutt-
ur til viðgerðar í bátasmíðastöð Jóhanns L. Gíslasonar í Hafnarfirði,
sem hóf viðgerð hans.
Fiskimálasjóðui' afhenti safninu ljósmynda- og íilmusafn Guð-
bjarts Ólafssonar matsveins í Hafnarfirði, en hann tók myndir af
fjölda íslenskra skipa og af fiskvinnu um langt árabil. Er safnið
mjög merkilegt og fyllir í mikla eyðu á þessu sviði.
Húsafrióunarnefnd.
Húsafriðunarnefnd hélt 12 fundi á árinu. Að beiðni nefndarinna]
fengust byggingar á Bessastöðum friðlýstar, kirkjan, stofan og