Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1889, Blaðsíða 123
123
um fornritum1, og Eymundr þessi (faðir Eiríks kon-
ungs) er kallaðr Önundr bæði í „Herv.“, og þætti
Hauks hábrókar (Fms. X. 198.), svo að hér er gát-
an ráðin og greitt úr flækjunni2. Konungatalið í
„Herv.“ er annars talsvert úr lagi fært í handrit-
unum (og útgáfu N. M. Petersens), sem sjá má,
þegar það er borið saman við „Lft.“, og hefir P.
A. Munch (Langes Norsk Tidskrift IV. 171.) fyrir
löngu bent á, hvernig eigi að leiðrétta það3; virðast
getgátur hans mjög sennilegar, enda hefir Bugge
tekið þær upp i útgáfu sína (bls. 293—294.). Kemr
1) I viðbæti Vestrgautalaga (Scr. r. Sv. I. 7.) er Ónundr
konungr Ólafsson kaliaðr Æmundær, eins og Eymundr
gamli, bróðir hans. Saxi (1. X, p. 54.) kallar hann Omund-
us, og Snorri (Hkr. 515. bls.) virðist einnig blanda þeim
bræðrum saman, er hann telr Emund (í stað Ónundar)
konung í Svíþjóð 1035, því að það er alveg víst, að
Önundr lifði miklu lengr, og Eymundr kom ekki til rík-
is fyr en um 1050, og var (eptir »Herv.») litla hríð kon-
ungr (til 1056 ?).
2) I fornri skrá norrænni um landamæri milli Noregs
og Svíaríkis, hér um bil frá 1270, stendr, að Herjúlfr
hornbrjótr, merkismaðr Hálfdanar svarta, hafi flúið »austr
í Svíaríki til Anundar _konungs», og kemr þetta einnig
vel heim við það, að Önundr hafi ráðið ríki um 840, og
verið sami maðr og Eymundr, faðir Eiríks konungs, sam-
tíðarmanns Haralds hárfagra, sonar Hálfdanar svarta (sjá
Ann. f. nord. Oldkynd. 1844—45, 168. bls.).
3) þar sem stendr í útg. N. M. Petersens : »Bjarnar-
synir váru þeir Eirekr Uppsali ok Björn konungr, þá kom
Svíarfki enn í bræðraskipti; þeir taka ríki eptir Eirek
Refilssunn, ..vill Munch lesa : »Eiríks symr Bjarnarsonar
váru þeir Önundr Uppsali o.k Björn konungr» o. s. frv.;
og þar sem síðar stendr : »Önundr hét son. Eireks kon-
ungs» vill hann lesa svo : »Eiríkr hét son Önundar kon-
ungs» (sem og .stendr í einu hdr.), og í staðinn fyrir
»Björn hét son Önundar konungs» á að lesa (eins og stendr
í sama hdr.) : »Björn hét son Eiríks konungs». Af
niðrlagi »Herv.» eru ekki til nema léleg pappírshandrit.