Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 7

Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 7
7 þaö, þótt þessir menn létu eftir lánardrotnum sínum, konungun- um, er löðuðu og lokkuðu, báðu og skipuðu mönnum nýja trú. »En ef ek skal á guð nökkut trúa, hvat er mér verra, at trúa á Hvítakrist en á annat goð« — sagði Gaukaþórir, og svo hafa margir hugsað, Samneyti við kristna menn, t. d. á Englandi, hefur hka átt mjög mikinn þátt í því, að mýkja hugi manna. Vitneskjan um, að öll Danmörk var orðin kristin jafnvel fyr en hinir fyrstu trúboðsmenn, Porvaldur víðförli og Friðrekur biskup, komu til landsins, hefur hlotið að hafa haft geysimikil áhrif. Sumir af Islendingum höfðu verið prímsigndir í útlöndum, t. d. Egill Skallagrímsson og Gísli Súrsson. það sem að minni hyggju lang- mest studdi og flutti fram kristnina á Islandi, var hið almenna kæruleysi í trúarefnum. Pað þurfti því ekki nema nógu dug- lega, lægna og harðsnúna menn til þess, að kristna landið. »Ald- inið var þroskað«. Pað gerði heldur ekki lítið til, að hinn norski konungur stóð á bak við; það var »konungs erindi«, eins og sögurnar komast að orði,1 er þeir Gissur og Hjalti fluttu árið iooo. Og menn sáu þá þegar, hve harðleikið konungur gat gert íslendingum, ef þeir virtu erindi hans að vettugi. Ólafur Tryggva- son hafði haldið eftir mörgum Islendingum, höfðingjasonum, í gíslingu hjá sér; það má nærri geta, hvílík áhrif tíðindin um það hafa haft á hjörtu foreldra þeirra og frænda. Hér við bættist, að trúarboð Porvalds og Friðriks hafði þegar haft töluverðan ár- angur — jafnvel kirkju var búið að reisa. Stefnir Porgilsson hafði líka boðað trú og svo kom Pangbrandur, er skírði menn svo að segja um alt land. Pað var því vel skiljanlegt, að svo færi sem fór árið iooo; það, að heiðingjar voru að nafninu til fleiri en hinir, var til lítils, þar sem forsprakkarnir hins vegar voru svo öruggir og kæruleysið annars vegar svo magnað. Pað er auðséð, að margir, og það enda meðal höfðingjanna sjálfra, hafa undir niðri verið hliðhollir kristninni, að minsta kosti ekki á móti, og má telja tvö dæmi, sem eru vís. Pegar skáldið skor- aði á Úlf Uggason að kveða níð um Pangbrand, færðist Úlfr skor- inort undan því; hugarfar sitt sýnir hann ljóst með orðunum í sinni vísu: röng eru mál á gangi. Hitt dæmið er Snorri goði og 1 Pað er ein af getgátum höf., sem eru alveg gripnar úr lausu lofti, að Ólafur hafi viljað lika ná undir sig íslandi (38., 82. bls.); ekki einn stafur í neinu heimildarriti fer í þá átt — og hví skyldu þau hafa þagað, ef svo hefði verið?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.