Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Page 14

Eimreiðin - 01.01.1901, Page 14
flosi) um Arnarstakksheiði á leið til þings, og fékk hann að vita af mönnum, »er til þeirra höfðu róit«, hverjir það voru, og hann bar fregnina um komu þeirra til alþingis, svo að á þann hátt fengu allir að vita, að þeir voru við land. Svo er sagt berum orðum, aö er þeir Gissur voru komnir til Vellankötlu við Olfus- vatn (að austanverðu við Pingvallavatn), »þá gerðu þeir orð til alþingis, at vinir þeirra ok venzlamenn skyldu ríða í mót þeim« — og þá fyrst komu vinir Gissurar, og riðu svo með þeim á þing, en óvinir þeirra höfðu ætlað —• eftir að hafa fengið fréttina með Flosa — að verja þeim vígi þingvöllinn, en úr því varð þó eigi; þá vantaði auðsjáanlega foringjann Alt þetta stendur í Kristnisögu (þar aðeins um Flosa) og Islendingabók Ara. ?að er auðséð af þessu, að Ari hefur ekki vitað neitt um samtök eða fyrir fram ákveðinn fund, en orð hans sýna bezt, að hér er heldur ekki um neitt slíkt að ræða. Paö er þá fyrst, að vinir Gissurar og venzlamenn ríða á móti honum, þegar hann er bú- i n n a ð senda til þeirra. Alt bendir á, að ekkert hafi verið ákveðið áður; annars hefðu kristnir menn riðið beint til Vellankötlu og ekki á þingvöll — og beðiö þar Gissurar. Prátt fyrir þessa skýru sögu Ara og Kristnisögu lætur nú höf. þenna »Vellankötlufund« vera ákveðinn fyrir fram, og hann lætur Síðu-Hall boða til hans — sPað er eflaust [NB.] hann, sem hefur . . . látið út ganga skipun um alt land til hinna nýju höfðingja að vera komnir á ákveðnum degi í Vellankötlu « (83. bls.). Pað er þetta og annað eins, sem ég kalla skáldskap. Og það skáldskap, sem er svo fjarri því að styðjast við eða vera í samræmi við heimildarritin, að hann er öllu fremur þvert ofan í þau. Um ræðurnar á þingi vitum við nokkuð, einkum ræðu Por- geirs. Um »pólitískar« ræður heyrist ekki eitt orð, og þó álítur höf. (á 94. bls.), að þær hafi átt sér stað — »að í umræðunum hafi komið fram af hálfu kristinna manna harðar ákúrur til goða- valdsins, sem sæti yfir allri landsstjórninni« osfrv. Pá hafi heiðnir menn neitað að taka kröfur kristinna manna til greina osfrv. En nú segir Kristnisaga aftur berum orðum, »at engir óvinir þeirra þorðu at tala móti þeim«. Pað er nú bagalegt, að heimildar- ritin svona hvað eftir annað koma í bága við skoðanir höf. En þetta á nú heldur ekki að vera rétt hermt (sbr. umyrðin um Njálu- staðinn með nýju goðorðunum), vegna þess, að orð Ara sýni, að það hafi fleiri talað, en hann segir að: »þat bæri frd, hvé vel þeir

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.