Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Page 17

Eimreiðin - 01.01.1901, Page 17
Tímamót. i. Bæjarhérað liggur fram með H . . . firði austanverðum og er að austan takmarkað af Bæjarfjalli, sem liggur eins og skjólgarður austan við héraðið og hlífir því við hinum nöpru austan og land- norðan næðingum. Hverjum vegfaranda, sem á heiðskírum júlídagsmorgni stæði á Bæjarfjallsbrún, þar sem bezt er útsýni, mundi þykja fagurt um að litast í Bæjarhéraði, þó ekki sé þar alstaðar sem björgulegast í fyrsta viðliti. Fyrir neðan er Bæjarfjall, hátt og tignarlegt með hrikalegum klettabeltum og gróðurlausum melum. Millum klettanna og mel- anna eru hér og hvar skrúðgrænir grasblettir, sem veita skepnum Bæsveitunga ríkulegt fóður. Eftir mörgum lautum renna silfur- tærir lækir, sem kátir hoppa stein af steini og smáskvetta ýrunum framan í sóleyjar, fífla og önnur litfögur blóm, sem búa hópum saman á lækjabökkunum, vefja sig alúðlega hvert að öðru og kinka svo vinalega kollinum að blessaðri morgunsólunni, sem sendir sína hressandi, vermandi geisla yfir láð og lög. Fegar dregur frá fjallinu eru hallandi mýrarflákar, sem ná alla leið til sjávar. Neðst niður við sjóinn eru þeir orðnir að snöggum töðugresismóum, vegna þess ab náttúran hefir smátt og smátt ræst bakkana fram og þurkað þá upp, en sjórinn við og við borið á og komið rækt í — fyrir alls ekki neitt. Og niöur í fjörunni standa hraundrangarnir hrikalegir og brimbarðir fram við sjóinn, innan um hnöllótt, brimsorfið blágrýtið, — líkastir nátttröllum, sem hefðu dagað þar uppi í fyrndinni. Tegar þau hefðu stað- næmst þar til að verja land fyrir hinum »nýja sið«. Hér og hvar á mýrarflákunum mæta auganu grænir smá- blettir óafgirtir og margskæklóttir, til sýndar einna líkastir hval- þjóttu, sem um mörg ár hefir flækst fram og aftur um sjóinn, 2

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.