Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Side 23

Eimreiðin - 01.01.1901, Side 23
23 miklu fé í húsa- og jarðabætur, og þó hafði skepnum fremur fjölgað en fækkað, en ættsystkin gömlu Leitis-Gróu sögðu að ólýginn hefði sagt sér, að þær kringlóttu hans Jóns hefðu týnt tölunni. Sigurður, sem var manna gestrisnastur og gjörði að því leyti jafnt við vini sem óvini, bauð Pórði þegar til stofu, og er hann hafði stungið Skjóna sínum inn í réttina, sem var í sundi á mill- um skemmu og bæjarhúsa, fóru þeir inn og slapp fólkið því í þetta sinn með óhýrt augnaráð. — Pegar þeir Pórður og Sigurður höfðu spurst almæltra tíðinda, inti Sigurður eftir, hversu langt ferðinni væri heitið, og kvað Póröur þegar komið á enda leiðar- innar, »og er það erindi mitt við þig,« sagði hann, »að komast eftir því, hvort þú munir ekki vera fáanlegur til þess, að liðsinna mér, og nokkrum öðrum, í því að koma á fót nokkurs konar framfarafélagi hér í sveitinni.« »Eruð þið að hugsa um að stofna framfarafélag hérna ungu mennirnir?« »Já, ég hef fært það í tal við nokkra, og það fleiri en unga menn, svo sem Jón í Veitu og Guðmund í Nesi, og eru þeir ekki fráhverfir því að vera með, enda vonast ég til, að gott málefni sigri, svo ég fái flesta eða alla með mér.« »Helduröu nú að það sé svo sérlega áríðandi að stofna þetta framfarafélag?« spurði Sigurður og var napurt háð í röddinni. »Já, það blandast mér alls ekki hugur um, að það gæti orðið sveitinni til mjög mikilla þrifa, ef það yrði dálítið fjör í því, eða sýnist þér ekki margt þurfa umbóta hérna hjá okkur?« »Jú, það veit hamingjan, og ekki hvað sízt þessir nýju siðir ykkar; ég sé ekki betur en að þið ungu mennirnir haldið í skakka stefnu; en hvað á nú annars að verða aðalstarf þessa þarfafélags ykkar?« sagði Sigurður og glotti við. »Eg hafði hugsað mér,« sagði Pórður og saug fastan pípuna, sem hann var að reyna að kveikja í, en var hálfblind, »ef unt væri að haga því þannig, að allir félagsmenn greiddu eitthvert ákveðið tillag á ári, t. d. 1—2 krónur og af þeim peningum yrði svo helmingnum varið til þess, að kaupa fyrir ýmsar fræðibækur, sem svo yrðu látnar ganga um meðal félagsmanna til lesturs á kveldvökunum; hinn helmingurinn legðist í félagssjóð, að svo miklu leyti sem hann þyrfti ekki, til þess að borga með fundarhöld og

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.