Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Síða 26

Eimreiðin - 01.01.1901, Síða 26
26 »IJaö veit ég ekki, það er nú fyrir ykkur reikningsmennina að reikna það út!« »Já, ég var nú líka að því núna um daginn, og mér reikn- aðist svo til, að meðaltúnstærð hér í sveitinni mundi vera um 9 dagsláttur og það eru sama sem 8100 ferh. faðmar og þyrfti þá 54 ár, til þess að slétta þau öll, og eftir þann tíma fengist þriðj- ungi meiri taða af þeim, og meira en helmingi styttri tíma þyrfti til þess að vinna alt að þeim; og þó hefði það aðeins kostað hvern bónda að meðaltali 15 dagsverk í 54 ár og á helmingi færri árum hefði mátt girða þau öll, að vetrinum, að kostnaðar- lausu, að heita má. Hefði það ekki verið þarflegt félag, sem hefði komið þessu áleiðis, eða hvað finst þér, Sigurður minn?« »Jú víst hefði það verið, en það er nú ekki svo vel, að þau geri það gagn, félögin ykkar; þar gengur alt í dans og læti; og það get ég ekki þolað.« sþað getur verið, að þess finnist dæmi, að þess konar félög hafi verið mynduð og hjaðnað niður aftur, en það sannar engan- veginn, að öll félög þurfi að vera þannig löguð; og hvað viðvíkur félagsskapnum, sem ég hef verið að bollaleggja, þá hefir það aldrei verið meining mín, að koma á dansfélagi, heldur langaði mig til þess, að reyna að koma á stað einhverjum framförum í búnaði, af því mér virðist hann standa svo höllum fæti, búnaður- inn okkar, og það mest fyrir deyfð og framtaksleysi.« »Varstu ekki áðan að minnast á að hafa tvo skemtifundi á ári, og var þá ekki meiningin að dansa og tralla?« »Nei, alls ekki, aðalskemtunin ætlaðist ég til að væri sam- ræður um ýms nauðsynjamál og svo söngur, því mér virðist sem söngnum sé fremur að fara aptur en fram hérna í sveitinni, og er það illa farið um jafnfagra íþrótt.« »Á finst þér það,« greip Sigurður fram í; »já nú er ekki sungið neitt lengur, heldur beljar hver í kapp við annan, svo eng- inn söngur heyrist, og ekki um að tala að skilja eitt einasta orð; það var eitthvað annað í mínu ungdæmi.» »Ekki veit ég nú hvort þetta er allskostar rétt hjá þér,« sagði Pórður með hægöj »en það veit ég, að hann gæti staðið fyrir bótum, söngurinn okkar. En hvað viðvíkur skemtaninni, þá getur vel verið, að sumir dönsuðu eitthvað, áður en farið væri burt aptur.« »Já, átti ég ekki á von, að dansinn þyrfti að komast að, þar

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.