Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 66

Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 66
66 þeim aragrúa af heimildarritum, sem hér liggja fyrir, og koma aftur upp í dagsbirtuna með hnefafylli sína af skínandi perlum, sem enginn hefur uppgötvað fyr og ekkert mannlegt auða séð. Höfundinum þótti ekki einhlítt að byggja sögu sína á rannsóknum annarra manna. Hon- um þótti of tilkomulítið að vera að japla á ályktunum þeirra Munchs, Maurers, Vilhj. Finsens, A. D. Jörgensens, Sars’ o. fl. Eins og sam- vizkusömum og vandvirkum vísindamanni sómdi, bygði hann traust sitt fyrst og fremst á sinni eigin skarpskygni og hyggjuviti, og að þvi leyti sver hann sig í ættina við forfeðurna, sem trúðu á mátt sinn og megin. Hann lagði sitt eigið höfuð í bleyti, safnaði í sarpinn ár frá ári, velti fyrir sér viðburðasögunni og grannskoðaði menningarsöguna, og hérna liggur »bevísið«. Satt að segja er búið að skrifa svo mikið um hið elzta tímabil í sögu íslands og rannsaka það svo ýtarlega, og það af frægum og við- urkendum vísindamönnum, að höf. hefði ekki verið nein vorkunn á því, að gjöra þennan bækling dálítið myndarlegar úr garði. Hann fer á hálfgerðu hundavaði ynr söguna, drepur niður fingri hér og hvar eins og af tilviljun og tæpir á ýmsum skýringum og frásögnum, sem hann svo hættir við alt í einu. Merkilegt má það heita, hvað hann á bágt með að draga fram merginn málsins víða í frásögnunum, hvernig hann kynokar sér við að einkenna viðburðina og lífið, sem hann er að lýsa, djarflega og einarðlega. Frásögnin lötrar víða áfram dauf og fjörlaus. Hér er þó sannarlega nógu stórfengilegt efni fyrir höndum, til þess að gjöra bæði viðburðasöguþættina og menningarsögukaflana svo úr garði, að þeir festi sig í sálu lesandans. En hitt er þó merkilegast, að all- víða bryddir á ónákvæmni í frásögninni, þrátt fyrir öll þessi undirbún- ingsár, og er það þó helzt að varast í alþýðubók. Ég skal leyfa mér að benda hér nánar á einstök atriði. í kaflanum um breyting á landstjórninni í Noregi (bls. q) er höf. að reyna að gjöra mönnum skiljanlegt ástandið í Noregi fyrir daga Haralds hárfagra. En það er lítið á frásögn hans að græða. Lesandinn er hér um bil jafnnær. Ég skil ekkert í því, að höf. skuli vera að telja eftir sér að lýsa nokkurnveginn greinilega fylkjastjórn- inni, stéttaskipuninni og fyrirkomulaginu yfir höfuð í Noregi, áður ein- veldið hófst. Það er þýðingarmikið atriði, því á því byggist að miklu leyti hið íslenzka þjóðveldi, eins og það var í upphafi. í frásögnunum um landnámin (bls. 12 —15) getur hann ekki annarra landnámsmanna en Ketils hængs og Skallagríms, og þykist ekki hafa rúm til þess. Ég veit ekki til hvers hann ætti að hafa rúm, ef ekki til þess, að skýra nokk- urnveginn nákvæmlega frá mönnum þeim, mörgum hverium stórmerki- legum, sem má skoða eins og feður og grundvöll hins íslenzka þjóð- félags. Ég er heldur á því, að sagnfræðingar annarra landa mundu ekki undir höfuð leggjast, að innræta þjóðinni þekkingu á hinum helztu þeirra manna, sem grundvölluðu þjóðfélagið, ef þeir ættu kost á að gjöra það eins rækilega og vér íslendingar getum gjört. Ég fyrir mitt leyti álít Björn austræna, Þórólf Mostrarskegg, Unni djúpúðgu, Geir- mund heljarskinn, Ingimund gamla, Sæmund suðureyska, Helga magra, Hrollaug Rögnvaldsson, Ketilltjörn gamla, Örlyg Hrappsson 0. fl. vel þess verð, að þeirra sé getið. Það má óhætt fullyrða, að hvorki höf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.