Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Page 72

Eimreiðin - 01.01.1901, Page 72
7 2 vikið að hinum sönnu lífsskilyrðum, og í sambandi við þau að eins stuttlega drepið á hin ósönnu. En margt er vel sagt í fyrirlestri þess- um, og fátt er þarfara, en að leiða athygli manna að því, að nema þá list, sem erfiðust er, en jafnframt þýðingarmest, listina að lifa. Því næst kemur: »Guðlegur innblástur heilagrar ritningar« fyrir- lestur eftir séra Björn B. Jónsson. Fyrirlestur þessi fer í þveröfuga átt við skoðanir þær á sama efni, sem nú eru uppi víða meðal lærðra guðfræðinga í lúthersku kirkjunni, og vér Jslendingar höfum fengið fram- settar í »Verði ljós«. Þetta mikilvæga málefni, hefur þá í íslenzku kirkjunni verið rætt frá tveimur gagnstæðum hliðum. En þá vaknar líka eðlilega sú spurn- ing: hvorum megin liggur nú sannleikurinn ? Það verður ef til vill hlut- verk 20. aldarinnar að svara þessari spurningu. Þá kemur 'Minning siðabótarinnar« ræða eftir séra Jón Bjarna- son, og þótt ekkert sé annað en gott um ræðu þessa að segja, þá hefðum vér þó búist við meiru, þegar annar eins ræðusnillingur og séra Jón Bjarnason tók sér jafnmikilfenglegt efni fyrir hendur. Því næst koma 5 kvæði úr »Palmblátter«, hinu fræga ljóðasafni eftir þýzka trúskálcfíð Karl Gerok, í íslenzkum búningi eftir Matthías Jochumsson. Séra Matthías hefur áður þýtt mörg kvæði eftir sama höfund, og á hann miklar þakkir skilið fyrir það. Það væri mjög ánægjulegt, ef vér Islendingar með tímanum eignuðumst meginpartinn af þessu fræga ljóðasafni á tungu vorri. Og leyfum vér oss að óska þess, að séra Matthías Jochumsson í »Aldamótunum« haldi áfram þessu fagra starfi sinu, að gjöra hið mikla þýzka trúskáld þekt á meðal landa vorra. Þá koma »Afsakanir og autt rúm«, ræða eftir séra Jónas A. Sigurðsson. Það er lagleg ræða, en það er ekkert sérstakt við hana að öðru leyti En ræður finst oss, að ættu því að eins að vera teknar í »Aldamótin«, að þær að einhverju leyti séu frumlegar og sérstakar í sinni röð. Loks koma hinir venjulegu ritdómar eftir ritstjóra Aldamót- anna, séra Friðrik Bergmann. Minnist hann þar á flestar nýjar ís- lenzkar bækur, sem út hafa koinið á át'inu. Ritdómar þessir eru mjög vel ritaðir, og margar bendingar eru þar gefnar, sem vert er að taka til greina. Vér viljum að síðustu leyfa oss að vekja eftirtekt landa vorra á því, að ágóðanum, sem verða kann af sölu Aldamótanna, á að verja til styrktar hinni fyrirhuguðu skólastofnun Islendinga í Vesturheimi. Þeir, sem vilja styðja að því, að íslenzk tunga og íslenzkt þjóðerni haldist sem lengst meðal landa vorra í dreifingunni vestra, ættu því að styðja þetta fyrirtæki, sem er svo þýðingarmikið í því tilliti. En það fá þeir á engan hátt fremur gjört en með því, að kaupa sjálfir Alda- mótin, og greiða götu þeirra bæði hér og heima. J. þ, SVVEDENBORG : UM HINA NÝJU JERÚSALEM OG HENNAR HIMNESKU KENNINGU. New York 1899. Enn eitt trúvinglsritið höfum vér fengið á íslenzku Það er eftir hinn alkunna trúvinglsmann Swedenborg, og hefur skólastjóri Jón A. Hjaltalín unnið það afreks- verk, að snúa því á íslenzku. En með því að alt trúvingl er íslend- ingum fjarri, þá má ætla, að ritlingur þessi falli ekki í góðan jarðveg,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.