Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 76

Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 76
76 náma, Kristnisaga, Trójumannasaga, Bretasögur, Hemingsþáttur, Hervararsaga, Fóst- bræðrasaga, Eiríks saga rauða og Skáldasaga; þar að auki ýms heimspekileg, helgi- fræðisleg, landfræðisleg og náttúrufræðisleg rit, samtals 20 rit. Bókin er mjög merki- leg og útgáfa þessi af henni einkar vel úr garði gerð í alla staði; handritin, sem víða eru lítt læsileg, mjög nákvæmlega (stafrétt) afskrifuð og prentuð. Aftanvið eru skrár yfir mannanöfn (eftir Eirík) og staðanöfn o. fl (eftir próf. Finn). M. P. LANDNÁMABÓK er nýlega út komin (1900) á kostnað »Hins kgl. norræna fornritafélags« og hefir prófessor Finnur Jónsson búið þá útgáfu til prentunar og samið innganginn, sem er um handritin, uppruna bókarinnar og lýsing á henni. Hér er hver bókin á eftir annarri, og er fyrst sú Landnámabók, er »ritaða Haukr Erlendsson eptir þeirri bók, sem ritat hafði herra Sturla lögmaðr, hinn fróðasti maðr, ok eptir þeirri bók annarri, er ritat hafði Styrmir hinn fróði, ok hafða ek (segir Haukr) þat ór hvárri, sem framar greindi, en mikill þorri var þat, er þær sögðu eins báðar, ok því ekki at undra, þó þessi Landnámabók sé lengri en nokkur önnur«. Síðan kemur Sturlubók, sem Sturla Þórðarson ritaði, en síðust er Melabók (brot), er samin mun (eftir tilgátum próf. Finns) af Snorra lögmanni Markússyni (f 1313). Bók sú, er Styrmir hefir ritað, er töpuð. Auk þessara þriggja bóka eru ýmsir við- aukar (útdrættir úr öðrum fornritum) og nafnaskrár, og hefur stud. mag. Björn Bjarna- son samið þá, sem er yfir mannanöfnin. Utgáfa þessi er eins úr garði gerð og sú af Hauksbók og samsvara báðar kröf- um tímans að visindalegri nákvæmni og öllum frágangi, enda eru þær meðal hinna beztu, er til eru af nokkurum fornrita vorra. M. P. SNORRA-EDDA er og nýlega út komin í nýrri útgáfu eftir prófessor Finn Jóns- son (Khöfn 1900). Hefir tilgangur hans verið sá, að gefa hana út sem líkasta þvi, er hún kom frá Snorra eigin hendi, og hefir hann því rannsakað nákvæmlega og borið saman öll handrit hennar (sbr. Eimr. V, 233) og mun hann hafa náð tilgangi sinum. Þessi útgáfa hefir inni að halda Prologus (0: formála Snorra), Gylfaginning, Skáldskaparmál og Háttatal, og auk þess 9 viðauka (Þórsdrápu, Gróttasöng, nafna- þulur o. fl ), lausavísur og kvæðabrot eftir Snorra, formála og nafnaskrá (með skýr- ingum) eftir útgefanda. »Bragaræður« eru hér fyrsti kapituli af Skáldskaparmálum, en »Eptirmáli« og allur þess háttar seinni tima tilbúningur og viðbætir er ekki tek- inn með, nema hvað sumt er sett í viðauka. Utgáfan er ekki með skýringum á textanum, en orðamunur handritanna er neðanmáls. Bókin er ágæt sem skóla-útgáfa og liennar full þörf, því að útgáfa Sveinbjarnar Egilssonar og Árnasjóðs-útgáfan eru báðar uppseldar, en útgáfa séra Þorleifs Jónssonar var aldrei úr garði gerð sem vís- indaleg útgáfa. M. P. UM ÍSLENZKAR NÚTlÐARBÓKMENTIR er grein i tímaritinu »Hlídka« (Rijen 1900), sem rituð er á einhverju slafnesku máli, sem vér ekkert skiljum í, ekki svo mikið, að vér könnumst við nafnið á bænum (í hinum slafneska búningi), þar sem tímaritið er prentað. Ekki sést hver ritað hefir greinina, og eigi vitum vér heldur, hver sent hefir oss heftið, sem hún er i; en oss grunar að það muni vera séra Al. Koudelka i Nicolcic, sá er þýddi sögur Gests Pálssonar á böhmisku, því hann er kaupandi að Eimreiðinni, og greinin er mestmegnis um hana og þá höfunda, sem í hana hafa ritað, þó líka sé minst á ýmislegt fleira. Ritstjóri tímaritsins heitir dr. Pavel Vychodil. V. G.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.