Eimreiðin - 01.01.1907, Qupperneq 3
3
greinir, segja frá viðburðunum og skrásetja þá, og þessvegna kemst
þjóðtrúin ekki að með ýkjur sínar, til að skreyta frásögnina og
lyfta henni upp í hillingaheim staðlausrar hjátrúar.
Peir menn hafa rituð Sturlungu, sem vóru samtíða sögu-
þræðinum og staddir á miðri hálkunni og í sjálfu kviksyndinu, sem
barist er á. Landið er þá mest alt einn óslitinn orustuvöllur og
styrjaldarstórveldi. Landið er eins og brakandi svell — hálf-gagn-
sætt brakandi svell, sem djúp vötn eru undir. Og þessi djúpu
vötn eru hyldýpi huliðsheima. Hingað og þangað eru vakir og
uppgönguaugu, þar sem sér niður í eba inn í dularheiminn —
þegar og þar sem fyrirburðirnir koma í ljós, bæði í vöku og
svefni. Mest ber á þessum fyrirburðum næstu missiri á undan
Örlygsstaða-bardaga. Pá gerðust stórtíðindi í latidi, einhver allra
mestu, sem orðið hafa með þjóð vorri.
Pegar stórtíðindi gerast í einhverju landi, þá órar ýmsa menn
fyrir þeim, á ýmsar lundir. Kunnugt er mörgum mönnum um
fyrirburðina, sem urðu á undan stjórnarbyltingunni frönsku. Fa-
einir menn sáu atburðina fyrir, á ófreskra manna vísu, og sögðu
þá fyrir fram.
Sá var einn maður í Frakklandi, sem kom til stjórnarinnar oftar
en einu sinni og varaði hana við háskanum — árum saman áður
en byltingin hófst. Hún skelti skollaeyrunum við þeim röddum
og lenti þessvegna í gildrunni. Hún trúði ekki á drauma né
fyrirburði, eða ráðgjafar hennar.
Stortíðindi gerðust og í landi voru, þegar Skaftáreldurinn
geisaði og móðuharðindin 1783. Pá dreymdi séra Jón Steingríms-
son (ef ég man rétt), að maður kæmi norðan úr, eða norðan af,
jöklunum og nefndist Eldgrímur. — Sá draumur var augljós
fyrirboði eldsins, en að öðru leyti man ég nú ekki draum séra
Jóns og er draumsins að leita í æfisögu hans í Fjallkonunni, fyrir
aldamótin.
Nú sný ég aftur að Sturlungu og fletti upp sögunni sjálfri,
orðréttri, eins og hún er til okkar komin. Frásögnin er á þessa
leið:
»Fyrir tíðendum þessum, er hér fara eptir, urðu margir
fyrirburðir, Iþó at hér sé fáir ritaðir. Brynjólfr hét maðr á Kjalar-