Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1911, Page 61

Eimreiðin - 01.09.1911, Page 61
217 var aðalkrafa Jóns Sigurðssonar að fullu og öllu uppfylt, og hver minsti snefill af innlimunartilhneiging horfinn úr sögunni. En mundi þá Jón Sigurðsson hafa getað felt sig við, að sam- band Danmerkur og Islands væri nefnt »veldi Danakonungs« (»det samlede danske Rige«)? Verður nokkuð um það ráðið af ritum hans eða framkomu? Já, fyrst og fremst af því, að hann á alþingi bæði 1867 og 1869 samþykti, að Island skyldi kallast »óaðskiljanlegur hluti Danaveldis« (NF. XXVII, 13, 39), og í ann- an stað af því, að hann í sinni frægu ritgerð um landsréttindi ís- lands (gegn prófessor Larsen) tekur fram, að hann og þjóðfundar- mennirnir hafi bygt á því, »að ríkið vceri heild, sem hver ríkishhiti vœri háðure. (NF. XVI, 91). Pað má því með fullri vissu segja, að hann mundi ekki hafa amast við því, að ríkisheildin eða sam- bandsveldið væri kallað »veldi Danakonungs« eða »det samlede danske Rige«, — ekki sízt, þegar nafn Islands var jafnframt tekið upp í titil konungs. V. PERSÓNUSAMBAND. Svo kallast samband milli tveggja fullvalda ríkja, þar sem konungurinn einn er sameiginlegur og ekkert annað. þesskonar samband bar tvívegis á góma í tíð Jóns Sigurðs- sonar. Af því hann hafði í »Hugvekju til íslendinga« 1848 mint á Gamla-sáttmála og að sambandið hefði þá verið við konunginn einn, þá var þetta af sumum skilið svo, að hann vildi halda íram persónusambandi eða hreinu konungssambandi. Utaf þeirri hreyf- ingu, sem ritgerð Jóns vakti á Islandi, kom þá út löng ritgerð í »Reykjavíkurpóstinum«, eftir merkan íslending, og segir þar meðal annars: »En við því mun naumast vera að búast, að stjórnin í Danmörku, hvað frjáls og frjálslynd sem hún að öðru leyti verður, muni gefa kost á því, að Island hafi ekki neitt annað samband við Danmörku en sama konungsnafn. þessháttar sambandi mundi ísland ekki heldur geta náð við nokkra aðra þjóð, þó það ætti að koma einhverntíma á daga þess, að skilja við Danmörku og bindast öðru ríki« (Rvíkurp. III, 40). Þessu svarar Jón Sigurðs- son með allmiklum þjósti, og segir: *Petta kann vel að vera, en hver hefir ímyndað sér sambandið svo? Pað verður að minsta kosti míklu nánara, ef það væri eftir þeim hugmyndum, sem vér ætlum hentugastar« og telur síðan upp allmörg mál, sem hann álíti, að ætti að verða sameiginleg (NF. IX, 61). Hér virðist því nærri stappa, að hann álíti það svo mikla fjarstæðu, að fara fram

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.