Eimreiðin - 01.09.1913, Page 17
169
svip og haldið fram þeirri skoðun, að hverjum manni megi standa
á sama, þótt hann eigi engan tiltekinn föður, ef hann getur notið
gæða lífsins. — Stórþjóðirnar eiga fæðingarstofnanir, þar sem
faðernin hverfa eins og plógfar í sjónum. En ekki kjósum vér að
eiga þar fæðingarsveit. Tilfinningar vorar ’rísa upp og krefjast
þess, að móðir okkar geti feðrað barn sitt. Alheimsborgarinn unir
því, ef til vill, að veröldin sé ein flatsæng, þar sem allra sveita
kvikindi fallast í faðma og skapa sveitfesti ungu kynslóðarinnar. En
vér snúum bakinu við þeirri nýlendu og kjósum heldur að fara á
íslenzkan hrepp, — þó að hann sé ekki fyrirheitna landið.
Pjóðerni og móðerni eru keimlík orð og náskyld. Vér elskum
þau og vér finnum hjartsláttinn í brjóstum vorum, þegar vér
óttumst um framtíð þeirra hugmynda, sem eiga rætur sínar, eða
undirstöðu, í móðurmoldinni.
Af því vér elskum móður vora, viljum vér vera vissir um
faðernið. Pví að eins er sæmd hennar fullkomin.
Ef mér byðist barnfóstur, mundi ég þiggja það — ef ég
væri örbjarga maður og ef ég tryði fóstra og fóstru fyrir barninu,
betur en sjálfum mér. En þótt ég léti barnið af hendi, mundi ég
ekki láta laust faðernið. Eg mundi vilja heita faðir barnsins, eins
og ég vil heita og vera sonur föður míns. Þetta eru þau gæði,
sem ég vil ekki selja né gera að verzlunarvöru. Auðvitað er
þetta atriði tilfinningamál. En þær tilfinningar eiga það Helgafell
yfir höfði sér, með fullum rétti, sem þær leyfa engum manni að
líta til — óþvegnum.
Pessar tilfinningar eru svo gerðar, að þær vilja hvergi krjúpa
á kné, á hinum miklu augnablikum lífsins, nema á móðurmold-
inni. Pær tilfinningar eiga að vera friðhelgar. þeir menn, sem
bera þær í brjósti, geta ekki sætt sig við það, að feðratungan
falli í gleymsku. þeir þverneita því, að faðirvorið sé lesið yfir
þeim á útlendu máli, og aftaka að liggja undir þeirri mold, sem
kastað er á þá með erlendum formála.
Eyland minninganna.
Eftir JOHAN BOJER.
Fimm gamlir munkar bjuggu einir sér úti í lítilli eyju. Oðrum
megin var ekkert að sjá nema endalaust hafið, sem nam við
12