Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 29

Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 29
181 unga stúlkan var að útliti, en nú greip mig áköf löngun til að fá hana inn til mín og biÖjast fyrir ásamt henni, hughreysta hana, ef [hún væri sorgbitin, gráta með henni, setja hana á kné mér og láta vel að henni. Eg heyrði hljóðlegar hreyfingar í nágranna- klefunum, þar sem hinar nunnurnar sváfu, og andardráttur þeirra og marrið í rúmunum, þegar þær hreyfðu sig, ollu mér hinnar mestu geðshræringar. Eg held, að mér hafi runnið í brjóst sem snöggvast, og sá ég, mér til mikillar gleði, að hurðin opnaðist og að nunna sú, er hvíluna átti, kom inn. Hún kom þangað, sem ég lá, og laut niður að mér, til að kyssa mig. En í því bili vaknaði ég, og mér sjálfum til mestu undrunar, var ég fullur örvæntingar yfir því, að þetta hafði ekki verið nema draumur. En nú heyrði ég greinilega, að einhver hreyfði sig í næsta klefa; ég heyrði, að stigið var létt með berum fótum á gólfið. Rétt á eftir heyrði ég, að einhver baðst fyrir og andvarpaði hljóð- jega. Mig langaði til að fara þangað inn og hughreysta, hver sem það væri, en þorði það ekki. Loks heyrði ég, að opnuð var hurð út að ganginum, og enginn getur útmálað geðshræring mína, þeg- ar ég heyrði fótatakið nálgast mínar dyr. Að vörmu spori var klappað ofurlétt á dyrnar, og þessi stuttu, léttu högg gengu eins og hnífstungur í gegnum hjartað í mér. Eg reis á fætur, vafði um mig ábreiðu og opnaði dyrnar. Uti fyrir stóð önnur stúlkan úr bátnum, og nú var það enginn araumur. Undurlágt sagði hún: »Ég. . . ég ætlaði bara að spyrja, hvort þér vilduð ekki ábreiðu í viðbót.« Ég ætlaði að svara »jú«, en varir mínar urðu fyrri til en sjálfur ég, og tæptu fram: »Komdu inn!« og það þó sál mín væri óttaslegin. Og eitt augnablik stóð hún þarna og starði á mig, en sté svo öðrum fætinum fram, síðan hinum, undurlétt, svo undurlétt. Hafið þið tekið eftir, hvernig ung og óspilt stúlka kemur inn úr dyrunum á herbergi ungs manns? Éað er eins og hún gangi í sjálfa sig — verði svipur einn —, hún svífur inn eins og andblær og hurðin lykst á hæla henni, næstum sjálfkrafa. Andlitinu snýr hún undan, og hún titrar af ótta og fögnuði. Ég tók báðum höndum um andlitið á henni og sagði: »Líður þér illa?« »Já« andvarpaði hún og hné niður við fætur mér. Tíminn leið, og ekkert algleymi jafnast á við það, er ótti og samvizkukvöl blandast við hinn æðsta unað. Við grétum bæði af angist, en fögnuðum þó um leið; og þó að væri niðdimm nótt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.