Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 35

Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 35
i8 7 hann í hálsinn á mér. En rétt á eftir lágum við í faðmlögum á jörðinni og kystum hvort annað emjandi og stynjandi af fögnuði. Hún sagði mér, að faðir sinn hefði verið búinn að lofa ein- um af félagsbræðrum okkar henni, og þessvegna kom okkur nú ásamt um, að flýja saman. Og við héldumst í hendur og flýðum í náttmyrkrinu eitthvað út í buskann, stöku sinnum stönsuðum við snöggvast til að kyssast. Og fyrsti dagurinn okkar rann, og við horfðum hvort á annað, en hlupum jafnt og þétt — hamingja okkar var í veði. Og við héldum yfir fjöll og firnindi og gegnum skóga og dali, við tvö, bara við tvö. Við lifðum á ölmusum, og stundum urðum við að stela. Vindar úr öllum áttum léku um okkur nótt og nýtan dag, sólskin og regn, kuldi og hiti urðu á vegi fyrir okkur, en altaf var hún jafn-gullinbrún á hörund og allaf blikuðu augu hennar jafnskært, Og dagar komu og liðu; en hvað kærðum við okkur um tímann? Oft sváfum við í heyhlöðum, stundum í skjóli við trjárætur eða kletta, en ég minnist þess líka, að við sváfum á víðavangi, þar sem kveldroðinn lýsti okkur til sængur og morgunroðinn vakti okkur með því að glóa á brám okkar. Við fórum um fjölda ríkja og landa, við fylgdumst með lækjunum, unz þeir voru orðnir að stórum fljótum, og margskonar angan ilmaði fyrir vitum okkar, úr trjám og úr jörðu, bæði haust og vor. Heiðbirtan ljómaði um okkur allan liðlangan daginn og vindarnir hreiðruðu sig í hári okkar. Oft og tíðum, er við vorum lögst til hvíldar í skógunum, tóku kynlegar raddir að óma í myrkrinu umhverfis okkur, og þá réttum við hvort ööru hendina og nefndum hvort annars nafn. Bræður mínir, ég hef sofið í dúnmjúkum hvílum konunga, og ég hef faðmað konur, sem hafa baðað sig í ilmvötnum og klæðst í silki. En hvað hefur það verið í samanburði við þennan tíma, sem við Zebaída flökkuðum um, öreigar að öllu nema ást og æsku, hamingjusöm af því einu, að fá ætíð að vera saman. Enn þá hrærist hjartað í brjósti mér, er ég hugsa til þeirra heið- björtu daga og minnist, hvílíkur unaður fór um mig, þegar við hreiðruðum okkur á allslausri jörðinni og hún rétti mér hendina og nefndi nafn mitt. Aldrei hefur nokkur hirðmey gert mig jafn- hamingjusaman og þessi tatarastúlka í rifnum tötrum, sem aldrei hafði baðað sig í öðru en rigningunni og sólskininu. Spyrjið ekki að endalokunum! Var hún ekki frjáls að því, að láta sér lítast á annan, og hvers virði væri hamingjan, ef sorg 13*
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.