Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Page 40

Eimreiðin - 01.09.1913, Page 40
192 Og var það ekki furðulegt kvöldið það? Kirkjuklukkan sl6 ellefu í þessu. Pið kannist við hálfbjörtu næturnar á Norður- löndum. Eg eygði trén í garðinum í gegnum bláleita móðu, en enn þá voru stór, eldrauð ský hátt á lofti, og endurspegluðust eins og logandi eldur í húsgluggunum. Alt var að komast í kyrð, hurðum var hrundið aftur, lyklum var snúið í lásunum, og langt í burtu heyrðist gjammið í hundi, sem vildi fá að komast inn fyrir nóttina. Enn þá stendur mér fyrir hugskotssjónum, hvernig næturfiðrildin svifu fram og aftur yfir grasflötunum í garðinum, og hvernig döggin safnaðist á blómin, svo þau beygðúst niður á við undan þunga hennar á þessari björtu, hlýju sumarnótt. Klukkan sló tólf, og ég stóð á bak við runn og starði heim að húsinu, veikur af geðshræringu. Skyldi hún nú opna glugga og tala ofurlítið við mig í hálfum hljóðum? En enginn gluggi var opnaður, og ég var orðinn ráðinn í því, að fara heim aftur; en þá heyrði ég alt í einu fótatak í garðinum, og það nálgaðist. fið- haldið líklega, að ég hafi hlaupið í felur eða flúið, af ótta fyrir að koma upp um mig. Ónei. Einhver rödd í hjarta mínu sagði: »Varenka!« Og vissi ég ekki! þarna var grein vikið til hliðar, og þar stendur hún með sjal á herðunum og litast um eftir mér. Eg stóð sem steini lostinn, — þið haldið líklega að það hafi verið af því, að hún kom gangandi fullum fetum? En því fór fjarri; hvenær hefur það heyrst, að ástfanginn maður hafi nokkru sinni orðið hissa á nokkrum sköpuðum hlut? Eg stóð kyr í sömu sporum, af því ég hafði aldrei séð hana eins fallega og hún var nú. Og nú kemur hún auga á mig, hún kemur til mín með fram- réttar hendur, og ég tók hana mér í faðm, og bar hana dálítið umkring, setti hana svo niður í grasið, en tók hana bráðlega upp aftur, til að setja hana niður á ýmsum öðrum stöðum. Eg^ held ég hafi nokkrum sinnum sagt: Varenka, og hún hélt um hálsinn á mér, og hvíslaði nafnið mitt öðruhvoru. En loksins tók hún báðum höndum um höfuð mér, hélt því dálítið frá sér, brosti framan í mig og sagði: »Eakka þér fyrir, að þú hefur læknað mig!« Og ég var svo frá mér numinn, að ég spurði: »Hvað þá,. hefurðu verið veik?« »Ertu frá þér?« sagði hún. »Sástu ekki aö ég gat gengið? Eað var í fyrsta sinn, og hugsaðu þér, að ég þá_ skyldi fá að koma til þín.« Mér finst ég muna eftir, að ég hafi borið hana um garðinn,. og að við bæði gleymdum, hvað við ætluðum að segja hvort

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.