Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 77

Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 77
229 miklu breytinga, ef þeir rækti landið, sníði sér stakk eftir vexti og læri nýtni og sparsemi. »Hvort íslendingar eiga skilið að heita »kúltúr«-þjóð, er komið undir því, að hve miklu leyti þeir rækta landið,« segir höf. — Pó bók þessi sé frumsmíði í sinni grein, er hún mjög virðingarvert yfirlit yfir jarðrækt Islendinga, lýsir mikilli elju og áhuga höfundarins og hefur margan fróðleik að geyma. Auk þess eru í bókinni margar nýjar rannsóknir. einkum á jarðvegstegundum, sem þýðingu hafa fyrir vísindin. P, Th. UM SAMBANDSSLIT NORÐMANNA OG SVlA (»Et norsk Skrift om Unions- oplösningen i 1905«) hefur prófessor Kn. Berlín skrifað mjög langa ritgerð í »Stat- vetenskaplig Tidskrift« (Lund 1913), og er hún eiginlega ritdómur um hina þýzku bók eftir prófessorana norsku Aall og Gjelsvík: »Die norwegisch-schwedische Union, ihr Bestehen und ihre Lösung« (Breslau 1912), sem getið hefur verið í íslenzkum blöð- um. Beinist hann þar einkum að þeim köflunum, sem próf. Gjelsvík hefur samið, og tekur ómjúkum höndum á ýmsum kenningum hans, sem hann eigi allsjaldan hrekur með orðum Gjelsvíks sjálfs á öðrum stöðum. Er þar allvíða minst á sam- bandsmálið íslenzka og þá sér í lagi á þá kenningu Gjelsvíks, að Gamlisáttmáli sé enn í gildi; Islendingar hafi að vísu eftir 1814 sœtt sig við að lúta Danakonungi, eða jafnvel viðurkent það, en þó með því skilyrði, að Danir viðurkendu þá líka Gamlasáttmála. Fyrst þegar Danmörk hafi viðurkent þann sáttmála, verði Danmörk sambandsaðili í stað Noregs. Afstaða íslendinga gagnvart Danakonungi og Dönum síðan 1814 verði því í raun og veru að skoðast sem tilboð um sáttmála. En færist Danir undan því, að taka þessu boði og sú undanfærsla komi greinilega í Ijós, þá eigi ísland rétt á að segja skilið við Danakonung og Dani. Gagnvart þessum kenningum Gjelsvíks (sem virðist stafa frá Bjarna frá Vogi, því hann hafi vísað til þeirra ári áður en ritið kom út), tekur próf. Berlín fram, að líklega fáir eða enginn af Danakonungum hafi haft hugmynd um tilveru þessa Gamlasáttmála, sem þeir hefðu átt að vera bundnir við, og að íslendingar nokkuru sinni eftir 1814 hafi sett nokkurt skilyrði fyrir viðurkenning sinni gagnvart Danakon- ungum, sé hrein og bein bábilja. Ekki einu sinni nú síðast, við konungaskiftin 1912, hafi bólað á neinu skilyrði. Auk þess sé þessi 600 ára gamli sáttmáli svo úreltur, að varla nokkurt af ákvæðum hans gœti nú verið óbreytt í gildi. En hér liggi fisk- ur undir steini hjá Gjelsvík, er hann setji fram þessa kenningu. ÍPví sé Gamlisátt- :náli enn þá í gildi, sem fyrirskipar, að Island skuli hafa sama konung og Noregur, og geti Danmörk þá fyrst orðið sambandsaðili, er hún viðurkenni Gamlasáttmála, þá verði afleiðingin af því, að Islendingar segi skilið við Dani, ekki sú, að Gamli- sáttmáli hverfi alveg úr sögunni, heldur — að Noregur verði aftur réttur sambands- aðili, sem eigi tilka.ll til Islands. I niðurlagi ritgerðar sinnar tilfærir próf. Berlín ummæli hins fræga þýzka ríkis- réttarfræðings Jellineks um, að harla ólíklegt sé, að nokkurntíma framvegis verði stofnað ríkjasamband af líku tægi og samband Norðmanna og Svía, en hitt sé aftur líklegt, að sú komi tfðin, að takmarkað samband myndist milli allra ríkjanna á Norðurlöndum. Undir þá hugsun tekur próf. Berlín og vill, að öll þrjú Norður- landaríkin (Danmörk, Noregur og Svíþjóð) verði eitt sambandsríki eða Bandaríki — og gæti þá ísland máske orðið fjórða ríkið í því sambandi, bætir hann við. Hefðu líklega sumir íslendingar svarið fyrir, að sú uppástunga kæmi úr þeirri átt. V. G. UM BÓKMENTASTARFSEMI ISLENDINGA í KAUPMANNAHÖFN hefur bókavörður Sigfús Blóndal ritað einkar glögga og fróðlega grein í »Berl. Tid.«
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.