Eimreiðin - 01.07.1919, Page 7
EIMREIÐIN]
ORKUGJAFAR ALDANNA
135
gömlu sólargeislum, er orkumest, sterkust, og eru það
óefað Englendingar; næstir þeim fara svo Bandaríkjamenn
og Þjóðverjar.
Það er hvort sem annað, að góður er nauturinn að
orku kolanna, þar sem sólin er, enda er orkan mikil.
Hafa nákvæmar rannsóknir verið gerðar þar að lútandi,
kolin mulin sandsmátt, sett í járnhylki og látin brenna
þar í hreinu súrefni. Meðan brenslan hefir farið fram,
hefir járnhylkið verið látið liggja í mulnum ís, og hefir
við þessar tilraunir komið í ljós, að tvípund af bestu kolum
geymir í sér hvorki meira né minna en 8000 hitaeiningar;
en hitaeining er sú orka nefnd, er hitað getur tvípund af
vatni um 1 stig á Celsius; en sú orka jafngildir aftur
þeirri vinnuorku, er þarf til að hefja tvípundsþunga 424
metra í loft upp. Tvípund af bestu kolum, er notað væri
út í ystu æsar, geymir því í sér vinnuorku, er lyft gæti
þessum sama þunga 3000 kílómetra í loft upp, eða kastað
honum sem svarar héðan langt suður á Frakkland. Þetta
er enn eftir af. sólargeislunum, sem um hundruð þúsunda’
ára hafa geymst á svörtu flöskunum í kjallara náttúr-
unnar, og þennan kraft erum vér að nota til að knýja
gufuvélar nútímans; en því miður fer svo mikið af þess-
ari orku forgörðum við brunann. — Það, sem þúsundir
manna áður sveittust blóðinu við, það leikur nú einn
maður sér að gera, með því að snúa svolitlum hana á
gufuvélinni, eða öðru áreynslulitlu handarviki. Á nokkr-
um áratugum hafa orðið meiri breytingar í heiminum, en
á þúsundum, já, tugum þúsunda ára áður, og standa þær
flestar í beinu eða óbeinu sambandi við kolin og gufu-
vélarnar. En skuggalaust er þetta þó ekki. Eins og eg
sagði áðan, þarf eldurinn að eta, og aðalmaturinn eru
kolin; en kolin vaxa ekki né aukast; þau eru fyrningar,
sem við erum að ganga á, og eyðist það, sem afertekið;
og þegar aldrei er bætt neinu við, þá fer svo á endanum,
að alt etst upp. Þetta var, eftir miðja öldina sem leið,
áhyggjuefni þeirra, er horfðu fram. »Hve lengi munu
kolin endast?« var spurning, er hærra og hærra lét til
sín heyra.