Eimreiðin - 01.07.1919, Blaðsíða 64
192
RITSJÁ
[EIMREIÐIN
hræddur um að það hafi rætst á honum, sem hann spáir um
Sigurð Breiðfjörð:
Og ef að við fellum pig aftur úr hor
í annað sinn grætur pig pjóðin.
Nú grætur pjóðin Porstein Erlingsson. Hvað sem er um nýrri
kvæðin, pá heíir Porsteinn reist sér pað hásæti með pjóð vorri,
að fá eða ekkert ber hærra. Og pessi nýja útgáfa af »Þyrnum«
verður vafalaust fljót að seljast. Útgáfan er og hin vandaðasta
að öllum ytra frágangi. Sigurður próf. Nordal hefir haft aðal-
umsjón með henni. Prentuð eru ýms minningarorð um Porstein,
h. u. b. 50 bls., framan við kvæðin. Efnisyfirlitið er með gamla
sleifarlaginu, ekki hirt um að raða kvæðunum eftir stafrófsröð,
og ekkert sýnt nema fyrirsagnirnar (ekki upphöfin). Petta ætti
ekki að eiga sér stað í vandaðri útgáfu, og heimskulegt ef geyma
á til síðasta bindis. M. J.
LÝSING ÍSLANDS. Ágrip eftir PORVALD THORODDSEN.
Priðja útgáfa, aukin og endurbætt. H. Aschehoug & Co., Kmh.
MCMXIX. 151 bls. 8vo. Verð kr. 3,60, innb. 4,25.
Pað var orðin meira en pörf á nýrri útgáfu af íslandslýsing-
unni litlu. Hún er bók sem nota ætti í hverjum einasta alpýðu-
skóla landsins (gagnfræðask., búnaðarsk., kvennask. o. s. frv.), og
hún er eina bókin á íslensku, að undanskilinni hinni miklu ís-
landslýsingu höf., sem gefur allsherjar fræðslu um Iandið sjálft,
landfræðislega og jarðfræðislega, um jurta- og dýralíf pess, og
um pjóðina, sem byggir pað, ætterni hennar og sögu, atvinnu-
vegi, menningu og stjórnskipun. En önnur útgáfa er fyrir löngu
uppseld, enda eðlilega farin að úreltast að pvi er snertir hagi
pjóðarinnar, atvinnuvegi o. p. h. En pessi priðja útgáfa er alger-
lega endursamin, og í hverju einu bygð á allra nýjustu heimild-
um. Mun hún mörgum kærkomin; og ekkert efni er svo purt
að ekki verði pað skemtilegt pegar próf. Thoroddsen segir frá,
jafnvel pegar hann fer svo fljótt yfir sem hann oft og einatt
verður að gera í pessari bók, sem svo víða kemur við.
í bókinni eru fjöldamargar myndir og uppdrættir og allur
frágangur er góður. Framan á kápunni er litprentuð mj'nd af
hinu nýja ríkisskjaldarmerki íslands.
Prentvilla er pað á bls. 138, að bæjarútsvör í Reykjavík 1914
hafi verið 13 pús. kr., á að vera 113 pús. S. J.
ÚTKOMA pessa heftis af Eimreiðinni hefir dregist vegna ann-
ríkis í prentsmiðjunni; handritin voru tilbúin fyrst í júní, eins
og sumar greinarnar bera með sér, og afhent prentsmiðjunni pá.