Eimreiðin - 01.07.1919, Blaðsíða 16
144
ORKUGJAFAR ALDANNA
[EIMREIÐIN
Braun, því annars mundu þessi 3 kíló af geislaefni, sem
við höfum komið þarna fyrir, fara með þessa frumsmíð
okkar upp í Síríus eða ennþá lengra. Okkur langar til
að sjá, hvernig þessu reiðir af, og bíðum því þarna sólar-
hring. Eftir 24 stundir eru sömu mennirnir aftur þarna
staddir; í hálofti, rétt svo að augað eygði, sást ofurlítill
díll, er stækkaði smátt og smátt, og féll loks niður skamt
frá þeim með svo miklum hraða, að hann sökk sem
svarar 3 fet í jörð. Gengu mennirnir þar að, grófu upp
farið og báru það á milli sín inn í verksmiðjuna. »Bæri-
lega tókst þessi fyrsta tilraun okkar«, mælti Braun; geisla-
orkan befir alveg haldið í við aðdráttaraflið. Okkur ætti
nú að vera alveg óhætt að leggja út í að smíða reglulega
geimferju. Nú ætti ekki úr þessu að verða þess langt að
biða, að við getum húsvitjað hjá Marsbúum, og kannske
komið við á fleiri býlum og eyðikotum í geimnum.
VIII.
Þetta rætist. Ár og aldir líða. Við tökum nú seinasta
sprettinn, en fáum okkur hressingu fyrst, því nú er langt
í áfangastað. Ferðinni er heitið alla leið upp í Venus, og
ætlum við að hlusta þar á fyrirlestur, sem jarðprófessor
ætlar að halda þar í kveld í borginni Heliopolis. Petta er
árið 2810. Aðalefni fyrirlestursins er geislaorkan og notkun
hennar. Fer prófessorinn þar virðulegum og lofsamlegum
orðum um göinlu karlana, sem uppi voru fyrir 900 árum
og fyrstir fundu radíum og rannsökuðu það, þótt lítt
kynnu þeir að nota sér orku þá, er í því býr. Dró hann
í lok fyrirlestursins upp úr vasa sínum gamalt og forn-
fálegt skjal, prentað fyrir 9 öldum tæpum, og las þar upp
klausu þá, er hér fer á eftir; átti hún svo sem að gefa
áheyrendunum smekk af víðsýni gömlu karlanna, sem
fyrstir höfðu fundið upp á þvi, að kljúfa frumagnirnar
og leiða í Ijós geislaorkuna, sem þeirri sundrungu var
samfara. Kemst gamli spekingurinn þar þannig að orði:
»Frá aldaöðli hafa varðveitst og fylgt mannkyninu ýmsar
merkilegar sagnir; hafa sumar þeirra svo djúpar rætur,
að engin rannsókn hefir getað fyrir þær grafið; liggur því