Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1919, Side 11

Eimreiðin - 01.07.1919, Side 11
EIMREIÐINI ORKUGJAFAR ALDANNA 139 Þetta nýja efni nefndu þau radíum, af latneska orðinu radius, sem þýðir geisli. — En ósköp var lítið af þessu efni. Úr 2000 pundum af úranblöndunni fengust ein 333 milligröm af radíum, eða svolítil ögn framan á hnifsoddi úr heilu tonni af blöndunni. í þessari agnarögn hvítra . kristalla var öll geislaorka úr 10 hestburða þunga saman komin. Þau hjón tóku nú að rannsaka þetta nýja efni, og árið 1904 birtu þau árangurinn af þessum rannsóknum. Sam- kvæmt þeim sendir þetta nýja efni stöðugt og stanslaust frá sér ýmsa geisla, er altaf nokkrum stigum heitara en loftið í kring, og það sem merkilegast er, rýrnar hvorki né eyðist, þrátt fyrir þetta stöðuga geislaútstreymi. Nú fór heldur að verða ókyrð í herbúðum vísindanna. Á þeim háu stöðum var þegar fyrir löngu búið að ganga svo frá hyrningarsteinum eða undirstöðum þekkingarinnar, að engum datt í hug, að við þeim þyrfti nokkurn tíma framar að hreyfa; eins og jarðfastir klettar töldu allir víst, að þau undirstöðuatriði mundu standa, hvað sem á gengi í heiminum. Meðal þessara aðalhyrningarsteina var kenningin um viðhald orkunnar, bygt á því, að eyðist það, sem af er tekið, og svo hinu, að ekkert getur orðið af engu. Ætluðu nú líka þessar máttarstoðir að reynast fallvaltar? Menn þektu orkuna, t. d. í kolamolanum; en þegar hann var útbrunninn, þá var hann um leið dauður sem orkuberi; þá þurfti að kveikja á nýjum kolamola, og svo koll af kolli. Nú var hér að reka inn höfuðið orku- beri, sem gaf og gaf, sendi frá sér látlaust geislamagn, en þurfti ekkert að fá í staðinn. Matur er mannsins megin; hann er orkugiafi mannsins, og það er ekki svo lítið, sem við látum í okkur; þrjár máltíðir verkamanns, sem vel er haldinn, eru talsvert fyrirferðar; en ekki endist sú orka nema þann daginn; næsta dag þarf aftur að leggja í. Gufuskipin þurfa talsvert af lestarúmi sínu fyrir kolin; þau eru þeirra matur; eftir nokkra daga er sá forði upp etinn, og þá þarf að kola aftur. En hvítu kristalla- agnirnar, sem þau Curiehjónin fundu, og skírðu radíum, þau geta gefið frá sér orku, sent frá sér geislamagn öld

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.