Eimreiðin - 01.07.1919, Qupperneq 14
142
ORKUGJAFAR ALDANNA
[EIMREIÐIN
Og hann hefir mælt þessa geislaorku; hún er hvorki
meira né minna en 250 þúsundföld við orku jafnþyngdar
af kolum. Eitt tvipund af bestu steinkolum gefur 8000
hitaeiningar, en tvípund af radíum mundi gefa 2000
miljónir hitaeininga. Tvípund steinkola gæti kastað jafn-
þyngd sinni 400 mílur í loft upp, en tvípund radíums
mundi flytja jafnþyngd sína hundrað miljónir mílna út í
geiminn. Þetta var nú þegar orðið kunnugt um 1910. En
það eru sérstaklega tvær spurningar, sem háskólakennar-
inn ætlar að setja fram og svara í þetta sinn. Önnur er
um það, hvernig eigi að því að fara, að afla sér til nokk-
urra muna af þessu geislamagni, og hin er sú, hvernig;
eigi að nytja það til hagnaðar. Hann svarar síðari spurn-
ingunni á undan, og sýnir áheyrendunum jafnframt ýmsar
smávélar, sem hann lætur þessa geislaorku verka á og
hreyfa, og skal hér ekki lengra út í það farið. Hvað fyrri
spurninguna snertir, ráðin til að afla sér þessarar orku,
minnir hann á það, að úranblanda sú úr Bæheimi, er
Curiehjónin unnu fyrst úr radíum, sé svo lítil, að ekki
hafi náðst úr henni meira en sem svarar 15 lestum á ári.
Það hefir því fram að þessu verið mesta ekla á radíum,
og það afardýrt; eitt milligram kostað um 100 krónur,
en eftir þvi mundi tvípundið kosta um 100 miljónir króna.
Hann telur þó að í aðra röndina hafi þessi radíumekla
verið kostur; því hér er vandfarið með vænan grip. Efnið
er sem sé baneitrað, veldur verri bruna en nokkur eldur
og þensluafl í því meira en í dynamit eða nokkru öðru
sprengiefni. Það var því ekkert barnaleikfang, meðan ókunn-
ugt var flest um eðli þess. Nú væri komin þekking á
þessu, segir kennarinn, og hættan því lítil eða engin. En
það, sem nú kallar mest að,,sé það, að afla sér til muna
af þessum orkugjafa; það dugi ekki að sitja með hendur
í skauti og bíða eftir þessari óveru, sem smátt og smátt
seitlast úr úranblöndunni, sem svo lítið er til af. Til þess
að ráða bót á þessu, segir hann að nú hafi verið reisí
verksmiðja, er hann sýnir myndir af. í þessari verksmiðju
verði nú unnið radíum í stórum stíl, ekki úr úran eða
úranblöndu, heldur úr öðru efni, sem enginn skortur sé