Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1919, Side 17

Eimreiðin - 01.07.1919, Side 17
EIMREIÐIN] ORKUGJAFAR ALDANNA 145 nærri að líta svo á, að slíkar sagnir séu jafngamlar mann- kyninu. Sumar þessara sagna falla svo vel við það, sem nú er að koma upp úr kafinu, að talsvert er freistandi, og verulegt tilefni til að líta svo á, sem hér sé ekki um hendingu eina að ræða, heldur felist i þessum sögnum insti kjarni æfagamallar menningar, sem nú er ekkert orðið eftir af, nema svo að segja eitt orð, ein einasta frumögn (atóm), en frumögn með undraverðu geislamagni, þegar hún er krufin til mergjar. Vil eg hér t. d. minnast á viskusteininn og söguna um hann. Þessi steinn átti að geta breytt einum málmi eða efni í annað, en jafnframt átti hann að verka sem ódáinsdrykkur eða ódáinsepli. Hér er því að ræða um undraorkubera, týndan fyrir ómunatíð, og ekki fundinn aftur, nema ef eitthvað skyldi nú vera að bóla á honum í sambandi við geislaorku- fundinn. En er það nú tilviljun ein, að þessum undra- steini er jöfnum fetum eignuð þessi tvennskonar orka, að breyta einu efni í annað, gera t. d. gull úr grjóti, og verka jafnframt sem ódáinsdrykkur, láta gamlan mann . kasta ellibelgnum, gera öldung að ungmenni? Á því þekkingar- stigi, er vér nú stöndum, verðum vér að skoða svo, að lífið eigi upptök sín í orkunni, og sem stendur vitum vér ekki betur, en að lykillinn að instu lindum lífsins sé breytingin, efnaskiftin. Eg kýs því heldur að líta svo á, að þessir tveir hæfileikar viskusteinsins, að breyta efnun- um og endurnýja lífið, sé eins og bergmál, borið til vor frá ómunatíð, og frá kynslóðum komið, er höfðu fetað sig áfram sömu brautina, sem vér nú göngum. Og ef vér nú af þessari getgátu mættum draga framhaldsályktanir, hvernig mundi þær þá verða? Jú, þær mundu verða á þá leið, að fyrir ómunatíð hafi mannkynið staðið á þekk- ingarstigi, ekki að eins jafnháu og vér stöndum nú, heldur miklu hærra — því viskusteininn þeirra höfum vér enn ekki nálægt því handsamað eða eignast. En kæmi þá ekki svona skoðun þvert í bága við alt, sem hefir verið sagt og skrifað um þroska og þróun mannkynsins, um stöðuga hækkun þess, neðan af lág- lendi fáfræðinnar, upp á þær þekkingar- og menningar- 10

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.