Eimreiðin - 01.07.1919, Qupperneq 19
EIMREIÐIN)
147
Sýnishorn af nútíma alþýðukveðskap.
1 hinu afarfróðlega Almanaki Pjóðvinafélagsins 1917 er sýnishorn af rimna-
og alþýðukveðskap ýmsra islenzkra hagyrðinga, að mestu leyti frá liðnum tima.
Petta hvatli mig til að senda Eimreiðinni sýnishorn af nútiðar alþýðukveðskap
í þeim tilgangi, að það timarit skoraði á hina mörgu hagyrðinga, sem nú eru á
lífi, að senda þvi sýnishorn af tækifæriskveðskap, sem þeir eiga hver fyrir sig
i fórum sinum, því eg álit, að það gæti verið bæði fróðlegt og kærkomið eftir-
komandi kynslóð vorri, að sjá á liverju stigi þessi einkennilegi kveðskapur hafi
verið á vissum timabilum.
Húsavik, 29. maí 1919.
Ari Jochumsson.
»Ferhendurnar deyja«.
Sbr. stökuna: »Pegar Páls er bros^n brá« o. s. frv.
Pótt nú séu þagnaöir
Porsteinn, Páll og Grímur,
yrkja á Fróni fjölmargir
ferhendinga rímur.
Hvað sem hijómafl hljóðfæra
hljóðbylgjurnar magna,
aldrei mun þó islenska
alþýðuharpan þagna.
Mín vili þjóðin mærðelska
— margt þó deyi og fúni —
að lifi blómin ljóðstafa
lengi í Braga-túni.
Hagyrðings þó bresti brá,
sem búinn er að skrifa,
og skáidjöfrarnir falli frá
ferhendurnar lifa.
Kveðið um Vit og strit
Dr. Guðm, Finnbogasonar.
Stritum svo að vaxi vit,
vitið semji nothæf rit;
rit, sem mæla námsins nyt,
nytsamleg við orkuslit.
10