Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1919, Qupperneq 24

Eimreiðin - 01.07.1919, Qupperneq 24
152 »LJÓS ÚR AUSTRI« 1EIMREIÐIN kynna mér »Mína aðferð«. Eg las bókina vandlega og fékk síðan frekari tilsögn hjá einum kunningja mínum í líkamsæfingunum. Síðar fekk eg lærðan iþróttakennara til þess að leiðrétta mig í ýmsum smávillum, sem mér höfðu á orðið í sumum æfingunum. Nú tók eg að iðka »Mína aðferð« og böð daglega, var nú orðinn einn af hinum mörgu Mullers-dýrkendum ofan á alt annað. Eg fór mér hægt við æfingarnar í fyrstu, en herti á smám saman, er eg tók að venjast volkinu. í öndverðum maímánuði fór eg að fara í sjó og hélt þeim hætti langt fram í nóvem- ber. Þannig barðist eg hinni hörðu baráttu daglega í 3 ár samfleytt, en á fjórða árinu féllu æfingarnar niður hjá mér dag og dag. Auk þess tók eg mér gönguskorpur, oftast daglega og venjulega um sama leyti dags. Eg las og ýmis- legt um íþróttir og kynti mér ofurlítið heilsufræðileg efni. En hver varð svo árangur minn af þessari látlausu baráttu? Hann varð í stuttu máli þessi: Ýmsir vöðvar líkamans þreknuðu og stældust, skrokkurinn varð liðugri og léttari í svifum en hann átti vanda til, taugakerfið lag- færðist töluvert tvö fyrstu árin, en stóð siðan í stað. Mér leið sérstaklega vel fyrstu klukkustundirnar eftir sjóbaðið, en aldrei gat samt neitt verulegt framhald orðið á þeirri líðan. Eg var altaf lasinn annað veifið, þótt köstin væru ekki eins hvumleið og í fyrstu. Síðara helming ársins 1917 og fram á sumar 1918, er eg hætíi Mullers-æfingum, stóð heilsa mín í stað. Ekki fann eg, að æfingarnar létu mér önnur andleg gæði í té en ofurlítið meiri kjark og skárri líðan yfirleitt. Andlegt fjör, kraft eða vitsmuni jóku þær ekki. Ein varanleg hlunnindi upp skar eg sérstaklega, sem eg hygg að íslenskri dýrtiðarnefnd hefði þótt »prin- cipsbrot« að láta mér í ,té, þótt eg hefði til þess unnið með súrum sveita. Eg fekk sem sé aldrei neina kvefpest öll þessi ár utan lítilsháttar slím í nasir, sem stundum olli mér reyndar töluverðra óþæginda. Það getur verið fróðleg dægrastytting í því að bera saman rökvísi og verð- leikamat guðs og manna. — Kvefpestin er einskonar skyldu- skattur á almenningi — álíka uppbyggilegur og kirkju- gjaldið —, sem flestir greiða í möglunarlausri undirgefni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.