Eimreiðin - 01.07.1919, Page 30
158
»LJÓS ÚR AUSTRI«
IEIMREIBIN
og aldraða iðulega hverfa inn um hlið þjáninganna þess
vegna, að þeim hafði aldrei verið kent jafnnauðsynlegt
og auðlært atriði sem það að anda rétt eða hafa einhvern
hemil á gönuhlaupum hins lægra manns. Vér erum fæddir
alls ókunnandi, upp aldir til þess að deyja og deyjum til
þess að tæma bikar vanþekkingar vorrar í botn. Umhyggja
foreldranna er dauði afkvæmisins. Miklir menn erum við,
Hrólfur minn! Vér hreykjum upp allskonar principum og
kerfum, sem hrynja jafnharðan yfir höfuð oss, af því að
undirstaðan var blekking veruleikans. Og siðan erum vér
að ljúga því að sjálfum oss, að vér séum praktiskir. Prak-
tisku mennirnir svo nefndu eru flestir hverjir í raun réttri
ópraktiskustu ormarnir, sem í duftinu skríða. í gervöllum
alheiminum hefir að eins ein hagsýni verðmæti og hún er
fólgin fyrst og fremst í þrá til þess að komast til viður-
kenningar á grundvallarlögum lífsins og síðan samstarfi
við eðli þeirra. Sá einn er því praktiskur, sem starfar í
samræmi við þessi lögmál. Öll sú »hagsýni«, sem brýtur
í bág við þau, er að eins útslit og eyðilegging, sóun tíma
og orku, sem endar fyr eða síðar í andstæðu sinni. Svo-
nefnd »hagspeki« vorra tíma hefir myndast við að gera
uppreist gegn lögmálunum. Hún hefir haft endaskifti á
verðmæti hlutanna, flækt sig í aukaatriðunum, forminu,
gert meðalið að marki, sjálfsblekkinguna að veruleika,
snúið lyginni í sannleika, eins og jafnan á sér stað, er
eigingjarn þekkingarskortur nær að kaffæra sanna þekk-
ingu og réttláta breytni. Afleiðingin verður svo grátur og
gnístran tanna. Andstæðutímabil þessarar »hagspeki« er
þegar í nánd. Svo er og um íþróttirnar. íþróttamenn vorir
þurfa ekki að ætla sér þá dul, að þeir geti upp bygt nokk-
urt skynsamlegt íþróttakerfi án þekkingar á orsökinni,
grund vellinum, sem skynheimur vor hvílir á. Annars
hrjmja þau í sjálf sig eins og hús það, sem bygt var á
sandi. Úetta eru sannindi, sem allir munu viðurkenna,
þegar þau eru orðin nægilega gömul og dirfskan í að
standa inóti nýjum staðreyndum er lömuð af ljósi hinnar
austrænu þekkingar. í dag munu menn fordæma þau sem
örgustu fjarstæðu. Það er mannleg náttúra. En eg gleð