Eimreiðin - 01.07.1919, Side 31
EIMREIÐIN)
»LJÓS ÚR AUSTRI«
159
mig við kenningu Laotse: Orð sannleikans hljóma sem
öfugmæli.
Þótt Yoga hafi gert mér nálega ómetanlegt gagn, vil eg
samt ekki ráða neinum til að sigla blint í kjölfar minnar
reynslu. Þess ber sem sé vandlega að gæta, að sumar
æfingarnar geta verið hættulegar, ef þær eru ekki rétt um
hönd hafðar; mönnum hentar þar að auki misjafnt, og
sumir eru sennilega svo veikbygðir, að þeir þyldu að eins
léttustu æfingarnar. Menn verða að prófa sig áfram í þess-
um efnum með nákvæmri athugun og varfærni, athugun
á sjálfum sér og æfingum þeim, sem þeir kysu sér til
iðkunar, og varfærni í að beita þeim fyrst í stað. En eg
vil eindregið ráða öllum alvarlega bugsandi og hleypi-
dómalausuin íþróttamönnum til að afla sér ríta um Yoga.
íþróttasambandi íslands vildi eg síðan ráðleggja að gera
mann út af örkinni ef kostur er, til þess að kynna sér
Yoga rækilega. Bestu leiðbeinendur í þeim vísindum eru
auðvitað indverskir Yoga-iðkendur. [Fakirar eru ekki
ómengaðir Yogar, heldur að eins skoplegir atvinnurek-
endur, sem hafa tekið ýmsar greinir úr Yoga í þjónustu
sína til þess að töfra fávíst fólk og hafa ofan af fyrir sér,
álíka og Jóhannes Jósefsson í Vesturheimi. En þeir eru
samt miklu máttugri í eðli en Jóhannes. — Vestrænir
loddarar eru aftur ómerkilegar skrípamyndir af fakirum.]
Eg veit ekki af neinum í nágrannalöndunum, sem leitandi
væri til í þessum efnum, að undanskildum danska mann-
inum Johannesi E. Hohlenberg, sem dvaldist við Yoga-
skóla í Indlandi um misserisskeið fyrir nokkurum árum.
Hohlenberg er lærður maður, hefir ritað ýmislegt um dul-
ræn efni, þar á meðal ágæta bók um Yoga. Mér virðist,
að iþróttasambandinu hefði verið miklu sæmra að bjóða
Hohlenberg hingað í sumar til þess að fræða sig og fólkið
heldur en að steðja hingað dönskum fótboltaklúbb öllum
til angurs, sem ekki eru smekklega gerspiltir og samdauna
þessum ruddalega hégóma, sem gengur næst spönsku
nautaati eða ólympisku leikunum.1) En til hvers er að
1) Par voru 90°/o iþróttaboltanna með einhvers konar hjartabilun árið 1908.