Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1919, Qupperneq 32

Eimreiðin - 01.07.1919, Qupperneq 32
160 »LJÓS ÚR AUSTRI« [ EIMREIÐIN fást um það; þar, sem þekkinguna þrýtur, er breytnin brjálsemi. Það má segja hið sama um þetta heimboð og Sigurður heitinn Breiðfjörð sá furðu skarplega, að velur sérhver vininn sinn, sem vitið bestan metur. Sumir »raunhyggjumannanna« munu segja sem svo, að það sé merkilegt, að maður skuli ekki þekkja þetta Yoga- kerfi, ef nokkurt vit væri í því. Já, merkilegt er það. En hitt er þó engu ómerkara, að menn skuli fyrst hafa upp- götvað snúning jarðarinnar nú fyrir nokkurum árum, stað- reynd, sem dulspekingurinn Pythagoras hafði kent löngu fyrir Krists daga. Sannleikurinn fer ekki umhverfis jörðina á 80 dögum. í apríl, 1919. Pórbergur Pórðarson. Yondafljót Einhversstaðar hátt uppi í fjöllum átti Vondafljót upptök sín. Menn vissu ekki með~~vissu hvar, því engum hafði enn tekist að rekja rás þess til uppsprettunnar fyrir ófær- um kleifum og jökulsprungum. Sumstaðar rann það hálfar og heilar mílur neðanjarðar; gróf sér göng undir ævagöml- um hraunum; smaug inn undir örlægstu lyngbörðin, sem lá við að hryndi niður af eintómri hógværð; eða það fal sig bak við gamla nafnkunna standhamra, svo æruverða, að engum datt í hug að gruna þá; steypti sér svo alt í einu hlæjandi, blygðunarlaust, ögrandi, fram af einhverju þverhnýpi sem enginn mannlegur fótur gat komist að — í stuttu máli: lék á alla sína njósnara, alveg eins og slung- inn glæpamaður í mannfélögum vorrar aldar. Vondafljót rann frá sinni ókendu uppsprettu, sinn ískyggi- lega farveg niður á milli fjallanna, þangað til það steyptist í fögrum fossi fram af háum hömrum í miðri dalbrún.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.