Eimreiðin - 01.07.1919, Side 45
EIMREIÐIN]
FRIÐUR
173
heimskan meiri, að henda sér með lífi og sál í faðm
þeirra. Því að ísland kæmi ekki íslenskt úr því faðmlagi.
Eg skrifaði nýlega litla grein um hættu þá, er íslensku
þjóðerni gæti stafað af stórum auknum flugferðum eftir
stríðið, af því að þær flyttu þetta litla þjóðarkrýli i ná-
býli við heimsþjóðirnar miklu. Ekki hefi eg orðið þess
var, að nokkrum manni hafi fundist þessi viðvörun um-
talsverð, og af því má marka, að augu manna eru fjarri
því að vera opin fyrir þessari bættu, sem nú vofir yfir
íslensku þjóðerni. Sumir héldu víst, að ég ætti við það,
að einhver stórþjóð gerði út leiðangur á hendur Islend-
ingum, her manns, í flugvélum! Annar maður fann aftur
á móti ekkert í greininni nema vafasama málfræði! Og
fiestir skjóta sér undir það skjólið, að flugvélarnar og
fluglistin yfirleitt, sé svo skamt á veg komin og ófull-
komin, að engin hætta sé i'ir þessari átt.
Heilaga einfeldni!
þetta sögðu menn líka einu sinni um gufuskip og járn-
brautarlestir, bifreiðar og víst um flest nýtt, meðan það
var á æskuskeiði.
Flugvélarnar eru ekki nema hvítvoðungur í vöggu, svo
ung er þessi list. Og þó voru þær kappar kallaðar í
heimsins stærsta ófriði. Og nú hefir ein fleytt sér yfir
Atlantshafið á nokkrum klukkutímum.
Og ein hefir nú sést á sveiini hér yfir Reykjavík.
En að menn muni nokkru sinni alment geta flogið til
íslands, það þykir spekingunum hér alveg óhugsandi!
Ressi er hættan sem íslensku þjóðerni stafar af fluglist,
sem komin er á þroskaskeið, svo að vanda- og hættulaust
verður að ferðast með þeim tækjum:
Vér komumst svo að segja í nábýli við stórþjóðirnar.
Þær kynnast oss og högum vorum og háttum lands vors.
Fluglistin bendir stórþjóðunum gráðugu á barnið með
gersimarnar, varnarlaust á almannafæri.
Og ég vil segja meira. Fluglistin er ekki að eins hætta
fyrir íslenskt þjóðerni, heldur fyrir þjóðerni yfirleitt. Hún