Eimreiðin - 01.07.1919, Blaðsíða 53
EIMREIÐIN]
FRESKÓ
181
skreytt með Sgraffito. Nú er eg búinn að hitta þann mann,
sem eg hefði átt að senda yður til þess að mála salinn
yðar. Hann er sextíu og átta ára gamall, sæmdur heið-
ursmerki og heiðursskjali, hann er »professore« og »alun-
no« í óteljandi listfélögum og asni í tilbót. Og þó að
freskó-myndirnar hefðu ef til vill ekki orðið eins góðar,
þá hefði höfundur þeirra komist betur út úr því öllu.
Hann hefði hvorki farið að lesa Tasso né leika Mazeppa
á Souchong. En svona getur maður altaf verið vitur eftir
á. »Eftir á koma ósvinnum ráð í hug««.
Charterys greifinna (á bréfspjaldi);
»Eg hefi talið það skyldu mína að senda helstu blöð-
unum hérna svolátandi sorgarfregn: »Því miður verðum
vér að tilkynna vinum og vandamönnum, að herra H.
Hollys, sem er að svo góðu kunnur o. s. frv. hefir fengið
sólsting meðan hann var að rækja ábyrgðarmikil stjórnar-
störf í Rómaborg, og afleiðing þess varð sú, að hann er
orðinn vitskertur.«
Hr. Hollys, Róm, til hertogans af Kingslynn, Milton
Ernest.
»Kæri Vic.! Þér vitið, hve ant eg læt mér um hag yðar,
en hvað get eg gert? Hún hefir aldrei farið mikið að ráð-
um mínum, og nú alls ekki, þegar eg er fjarstaddur. Ef
eg skrifaði henni um óskir yðar og legði fast að henni,
þá er eg viss um, að hún legði á yður fult hatur. Eg er
viss um, að hún virðir yður mjög mikils, og eg get engan
hugsað mér, sem væri betri maður handa henni en þér.
Þér, sem eruð svo hreinskilinn, blettlaus, fróður og geð-
prúður, væruð einmitt sá lífsförunautur, sem hún þyrfti
að fá. En ef yður finst hún ekki bera hlýrri hug til yðar
en alment gerist, þá umfram alt gefið henni ekkert tæki-
færi til þess að kvelja yður. Esmée er þannig, að ef hún
elskaði einhvern mann, þá mundi hún gefa sig honum
algerlega á vald, og laga sig eftir honum. En ef hún vill
ekki sýna yður nein atlot fram yfir það, sem alment vel-
sæmi og kunningsskapur heimtar, þá kæri Vic., vil eg
ráðleggja yður að rífa heldur hjartað úr brjósti yðar heldur
en gerspilla framtíð yðar, sem er svo glæsileg, með því að