Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1919, Qupperneq 59

Eimreiðin - 01.07.1919, Qupperneq 59
EIMREIÐIN] FRESKÓ 187 þetta gerir hana að afar merkilegu sálfræðilegu fyrirbrigði. Þetta er nú ef til vill nokkuð vísindalega til orða tekið. En eg segi þetta svo að þér skulið vita, að það eru þessar andstæður, sem fjötra athygli mina, og annað ekki. En nú á þetta líka að fara að hætta. Hún er á förum héðan, eins og eg hefi sagt yður, og líklegast kemur hún alls ekki heim í vetur. Hún fer frá einu góðbúinu til annars, og alt haustið fer í þessar sífeldu heimsóknir. Enskar hefðarkonur eru eigin- lega altaf á nokkurskonar leiksviði. Þær eru að leika hlut- verk, sem aldrei endar: skifta um föt, sitja yfir borðum, wskemta sér« og steyta sig upp af allskonar hnossgæti. Mér hefir skilist það svo af þvi, sem eg hefi heyrt á tal þeirra, að þetta sé eitthvert grunnfærasta og hégómlegasta líf, sem unt sé að lifa, en þó hefir greifinnan sagt mér, að í því megi einnig finna sannar nautnir. Hún segir, að þeir, sem aldir séu upp við þessa lifnaðarhætti, geti ekki hætt við þá. Hamingjunni sé lof, að eg er ekki einn úr þeirra hóp. Verið því alveg rólegur mín vegna. Eg er öruggur innan þessarar þreföldu skjafldborgar, sem eg nefndi áðan: Fá- tæktarinnar, sjálfsþóttans og listarinnar. Þér munið eftir þvi, að eg unni einu sinni stúlku í París, þeirri sem eg sagði yður frá sumarkvöld eitt, þegar við sátum í for- dyrinu að litla húsinu yðar, og máninn stór og eldrauður gægðist niður til okkar yfir brúnir auslurfjallanna. Hún dó, og siðan getur engin kona, sem henni er síðri, fengið vald yfir mér. Ástin og eg, við höfum víst fyrir fult og alt sagt sundur með okkur. Hér verð eg víst aleinn i þessu húsgimaldi alt haustið og veturinn, í öllum slagviðrunum og myrkrinu. Hafl eg að eins nóga birtu til þess að mála, þá leiðist mér ekki. Nú er eg að mála greftrun úr goðafræðinni. En það er ekki gott að fá fyrirmyndir hjá þessum feitu sveitabændum og gigtveika verkalýð. Það vill til að eg hefi endurminningar — nógar endurminningar — að heiman. Já, besti vinur minn, sem eg á, verið viss um það, að eg ann landinu mínu meira en svo, að eg fari að flana
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.