Eimreiðin - 01.05.1920, Side 4
132
FORFEÐUR MANNKYNSINS
IEIMREIÐIN
vísindamaður austur á Java höfuðkúpu, lærlegg og tvo
jaxla af tegund einni útdauðri. Eftir beinunum að dæma
hefir veru þessari svipað bæði tii apa og manna. Beinin
voru steingerð orðin; fundust þau alldjúpt í jörðu í forn-
um jarðlögum við árfarveg einn. í sömu lögum hafa
einnig fundist leifar af ýmsum öðrum dýrategundum, sem
nú eru útdauðar. Nokkur vafi er á um aldur þessara
jarðlaga. Sumir ætla að þau sjeu mynduð snemma á
jökultímanum, en sennilegra er talið að þau séu nokkuð
eldri eða frá plio-
centímanum.
Margir nafn-
kendir vísinda-
menn hafa hand-
leikið bein þessi.
Hafa þeii verið
skiftrar skoðun-
ar um það, hvar
skipa ætti teg-
und þessari sæti,
hvort heldur í
flokk með öpun-
um eða mönn-
unum.
Til mannanna
hefir veru þessari svipað að þessu leyti;
1) Heilabúið hefir verið óvanalega stórt, stærra en í
nokkurri núlifandi apategund.
2) Lærleggirnir hafa verið tiltölulega langir líkt og á
mönnum, og mun lengri en tíðkast á öpum.
3) Á lærleggnum má sjá merki þess, að tegund þessi
hefir getað gengið upprétt.
Aftur á móti er lærleggurinn sívalur eins og á öpum,
en ekki þrístrendur eins og á mönnum. Jaxlarnir eru til-
tölulega stærri en á mönnum, en lögun tannkrónunnar
svipar meira til mannsjaxla. Rúmtak höfuðkúpunnar eða
heilabúið hefir verið 850—1000 cm3. Heilabú gorillaapans
er 6—700 cm3 (þyngdin V200 af líkamsþyngdinni). Heila-
1. mynd.
Höfuðkúpa apamannsins frá Java.