Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1920, Síða 16

Eimreiðin - 01.05.1920, Síða 16
144 HNÍFAKAUP [EIMREIÐIN vaknaði í hug mér að hann ætlaði að pretta mig. Eg hafði heyrt talað um að kaupmennirnir í kaupstaðnum gerðu það við bændurna, en hvernig hafði eg eiginlega aldrei hugsað um. Mér fanst eg vera bóndinn, en hann kaupmaðurinn, og nú þurfti eg að vera var um mig. »Því bið eg þig ekki að sýna mér þinn hnif?« spurði hann mig með drjúghæðni i hreimnum. »Af því þú veist hvernig hann er«, svaraði eg kulda- lega. Eins og líka allir þektu ekki hnifinn minn! Eg hafði aldrei átt nema þennan eina vasahníf — ekki sem eg gat kallað hníf. Vorið sem eg keypti hann, tíndi eg alla þá ullarlagða, smáa sem stóra, mislita sem einlita, sem á vegi mínum urðu. Og leiðirnar urðu margar, sem til skepnanna lágu. Það vor varð upptíningurinn hálft annað pund. Fyrir það alt keypti eg svo hnífinn. — Ekki afgangur fyrir agnarögn af hagldabrauði og rúsínum ekki svo mikið sem brjóstsykurmola. Upptíningurinn var einu inntektir mínar á árinu, en hnífinn skildi eg heldur ekki við mig einn einasta dag alt árið. Skaftið var úr hvítu beini með járnhlýrum. Blaðið breitt og biturlegt og beit jafnt á harðfisk sem smérbita. Það var gat í gegnum hann að aftan, svo eg gat bundið hann við mig. Raunar var festin ekkert merkileg: samansnúinn seglgarnsspotti með marghnýttan hnút í neðri enda, og kappmellu á þeim efri, sem eg brá ýmist utan um miðhnappinn eða mið- hnesluna í vestinu. Mér datt ekki í hug að hafa hann óbundinn, því þá hefði hann verið fljótur að fara leiðina sína. Nú var eg búinn að eiga hann í næstum hálft ann- að ár. »Vertu nú ekki að þessari vitleysu, Jónki! — Hvernig ætti eg að muna eftir hnífnum þínum, þó eg hafi ef til vill séð hann í svip? Veistu ekki, að eg á sjálfur fallegri hnif en þinn og nýrri líka?« Rómurinn var nú orðinn þægilegri. »J-u-ú — en eg hefi aldrei séð hann«, svaraði eg seint og hugsandi. f*að var satt. Eg hafði aldrei séð þennan merkilega hníf, sem faðir hans hafði fært honum úr

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.